STUTT KREPPA Á ÁRI SEM ENDAR Á 8?

Færustu sérfræðingum ber ekki saman um það hve djúpur og langvinnur efnahagssamdrátturinn í heiminum verði. Er þetta upphaf á varanlegri kreppu eða jafnar þetta sig á einu ári? Það er sérkennileg tilviljun að tvívegis áður þegar skammvinnur samdráttur varð í bandarísku efnahagslífi endaði ártalið á tölunni 8. 1937 virtist bandarískt efnahagslíf ætla að halda áfram á uppleið sinni frá dýpstu kreppunni í kringum 1932, en þá skall á afturkippur sem setti mark sitt á bandarískt efnahagslíf árið 1938.

Árið 1939 rofaði til og uppsveifla ríkti þangað til Bandaríkin fóru í stríð 7. desember 1941, meðal annars vegna aukinnar hergagnaframleiðslu hjá "vopnabúri lýðræðisins" eins og Bandaríkjamenn nefndu land sitt.

Eftir að Kóreustríðinu lauk 1953 tók við uppsveifla sem fóstraði rokkbyltingu fyrstu ungu kynslóðarinnar í Bandaríkjunum sem hafði efni á að eignast bíla og hafa eitthvað á milli handanna. Gríðarleg bjartsýni ríkti fram til ársins 1958, en þá dundi yfir óvæntur samdráttur.

En eins og 1938 varð þetta aðeins eins árs efnahagslægð. Vonandi verður talan 8 happatala framtíðarinnar í ártalinu 2008 og það sama uppi á teningnum nú og 1938 og 1958, eins árs afturkipppur.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Þetta er nú bara til gamans gert. Frægasta markaðshrun sögunnar entist í nær áratug en ég er hér bara að spjalla um styttiri dýfur, sem markaðurinn hefur tekið og fyrir tilviljun á árum, sem enda á tölunni 8.

Ómar Ragnarsson, 3.2.2008 kl. 00:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband