Færsluflokkur: Bloggar
24.9.2023 | 00:51
Menntaðir flugliðar eru kjölfesta flugsins.
Ein af merkustu ræðum Churchills þegar Orrustan um Bretland stóð sem hæst var kölluð "the few", og fjallaði um það að í þeirri orrustu hefði það gerst, að aldrei í ófriðarsögu heimsins hefðu jafn margir á jafn fáum jafn stóra skuld að gjalda.
Í stríðinu sjálfu skipti fjöldi hæfra flugmanna öllu máli fyrir allar styrjaldarþjóðirnar.
Síðustu ár stríðsins olli skortur á eldsneyti og flughæfum vélum þar að auki meginmáli, en á þeim tíma var talið óhugsandi að flugmenn réðu við hlutverk sitt nema að að eiga að baki 300 flugstundir til æfingaflugs áður en þeir væru bardagafærir.
Hjá Þjóðverjum voru þessar dýrmætu stundir hins vegar komnar niður í nokkra tugi.
Í meginatriðum gildir það sama um borgaralegt flug.
Áður en sá reyndi flugstjóri Magnú Norðdal lést greindi hann síðuhafa frá þvi að ein af ástæðum þess hve fyrstu sex árin urðu erfið fyrir íslenska flugið á árunum 1946 til 1952 hefði líklega verið skortur á nægri flugreynslu við hinar frumstæðu og misviðrasömu aðstæður hér á landi.
Hið vaxandi gengi og umsvif íslenskra flugfélaga af öllum toga á áreiðanlega mikið undir því að íslenska flugið eigi sem hæfustu og best menntuðu starfsfólki á að skipa.
![]() |
Flugskóli Reykjavíkur tekur við af Flugakademíunni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.9.2023 | 10:47
Eyjafjallajökull kynnti Ísland öllu öðru fremur fyrir heimsbyggðinni.
Mesti efnahagsuppgangur lýðveldissögunnar varð hér á landi á árunum 2010 til 2018, og varð nær eingöngu vegna sprengjukennds vaxtar ferðaþjónustunnar. Úr því að það verða að meðaltali tvö til þrjú eldgos á Íslandi á hverjum áratug, rak hið stóra Grímsvatnagos smiðshöggið á gosið árið áður, því að það truflaði flugsamgöngur líka víða um lönd, þótt það væri ekki í eins miklum mæli og Eyjafjallajðkulsgosið.
Gosin tvö afsönnuðu rækilega þá eins konar trúarsetningu íslenskra ráðamanna, að aðeins stóriðja í eigu útlendinga gætu gefið möguleika til efnahagsvaxtar.
Eyjafjallajökull raskaði flugsamgöngum um mestalla heimsbyggðina svo að þrátt fyrir hið óþjála nafn eldfjallsins vissi öll heimsbyggðin um tilvist þess.
![]() |
Kemur Íslendingum verulega á óvart |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
22.9.2023 | 10:46
Lemstrun á sex ákomustöðum rafhjólreiðamanns á göngustíg við beygjurein.
Það er ástæða til að taka á þessari bloggsíðu undir aðvðrunarorð hjólreiðamanns um hættur sem getur skapast í beygjurein. því að þetta reyndi síðuhafi á eigin skinni fyrir sjö árum við svipaðar aðstæður og sýndar eru á mótum Njarðargötu og Hringbrautar í viðtengdri frétt á mbl.is.
Ökumaður bíls, sem var á leið eftir beygjurein til hægri frá Grensásvegi vestur Miklubraut og ætlaði að þvera göngu- og hjólaleið yfir reinina, leit snöggt til vinstri og sýndist hann geta komist inn í umferðina á Miklubraut ef hann yki snarlega hraðann.
Um leið leit hann fram fyrir sig en lág kvöldsól blindaði hann, þannig að hann sá ekki að maður á rafreiðhjóli var að ljúka við að þvera beygjureinina.
Bílnum var því ekið af afli á aftanvert rafreiðhjólið svo að knapi þess kastaðist upp á framrúðu bilsins, braut hana með hjálminum og skall síðan niður á götuna fyrir framan bílinn.
Ákomustaðirnir voru sex hjá hjólreiðamanninum, og einn þeirra í ökklabroti, sem mistókst að sjá fyrr á mynd fyrr en sex vikum síðar.
![]() |
Varar við hættum á beygjureinum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
21.9.2023 | 08:23
Byrjun á nokkurra alda eldgosatímabili á öllum Reykjanesskaga?
Fyrir um þúsund árum stóð yfir nokkurra alda langt eldvirknistímabil á Reykjanesskaga, allt frá Reykjanestá og norðausuur undir Þingvallavatn. Eftir að þessu tímabili lauk fyrir um átta hundruð árum stóðu þau ummmerki eftir, sem við höfum ekiið um, allt frá Ögmundarhrauni um Hellisheiði, svo að dæmi séu nefnd.
Innifalið í því er röð eldhrauna frá Ögmundarhrauni norður í Óbrynnishóla og niður í átt til Straumsvíkur og Vallanna í Hafnarfirði.
Mikið vísindastarf blasir við ef reyna á að lágmarka það tjón sem af nýjum eldgosaöldum kann að verða á innviðum af ýmsu tagi, háspennulínum, byggingum og vegum, að ekki sé nú talað um hina fánýtu hugmynd um flugvöll í Afstapahrauni, sem nefndur hefur verið Hvassahraunsflugvöllur.
![]() |
Skýrt merki um landris og kvika safnast fyrir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.9.2023 | 09:52
Tölurnar um tjónið vegna áfengisneyslu tala sínu máli.
Í gegnum tíðina hafa verið framkvæmdar ótal kannanir á tjónið, sem áfengisneysla veldur þjóðum heims, bæði stórum og smáum. Ein nýjasta könnunin í Bretlandi sýnir mun víðtækara tjón en áður hefur verið haldið og tölur sýna einnig, að þeim mun meira sem opnað er fyrir sölu á áfengi, því meira er drukkið.
Á þessum tölum byggir Alþjóða heilbrigðisstofnunin sitt álit á fyrirkomulagi áfengismála í heiminum.
En hér á landi er stór hluti þjóðarinnar svo sannfærður um ágæti áfengisins, að svo lengi sem munað er aftur í tímann, hafa ný og ný frumvörp verið lögö fram um að stórauka aðgengi að áfengisvörum í almennum verslunum.
![]() |
Frekar ætti að skoða að fækka áfengisverslunum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
18.9.2023 | 23:59
"Þar ríkir fegurðin..."undir áhrifum frá lagi Whittakers.
Fyrir rúmum áratug gerðist það kvöld eitt um svipað leyti, að ég heyrði í útvarpi spilað lagið "Last farewell" eftir Roger Whittaker og í flutningi hans en einnig fékk ég símtal með frétt um alvarleg veikindi náins ættingja.
Þessi áhrifamikla tilviljun olli því að sest var niður og gerður íslenskur texti við lagið og síðar farið í hljóðupptöku hjá Vilhjálmi Guðjónssyni og það tekið upp með hans vandaða hljóðfæraleik og bakröddum, sem Halla dóttir hans söng.
Fólk hefur haft samband við mig síðan og beðið um að fá eintak af textanum, sem ber heitið "Þar ríkir fegurðin."
Lagið á að vera til á Youtube, á spilaranum við bloggsíðuna og safndiskininum og söngljóðabókinni "Hjarta landsins" og viðeigandi að birta það hér vegna fráfalls Whittakers.
ÞAR RÍKIR FEGURÐIN.
Við berumst öll í átt að sama landi
í ólgusjóum lífs í gleði´og þraut.
Þótt fley okkar á boðum steyti´og strandi
í stormum lífs á örlaganna braut
ég veit að handan ógnarstrandar óttans
til orrustunnar miklu er ég býst
:,: þar ríkir fegurðin
í fullkomnun og sælu;
fegurðin, sem engin orð frá lýst :,:
Ég þáði ást og atlot foreldranna
og ástin stóra kom og gaf mér allt.
Er núna skal ég nýjar lendur kanna
og nístir brotið fley mitt brimið kalt
ég lít í anda ástvinina kæru,
sem aldrei bregðast, hvernig sem allt snýst,
:,: þá ríkir fegurðinn;
já fegurð hreinnar ástar;
fegurðin, sem engin orð fá lýst;,:.
Af moldu landsins kæra kominn er ég,
ég hverf til moldar og af henni rís.
Til himinsins og jökulsins frjáls fer ég;
þar fegurð, ofar hverri kröfu´er vís.
Er jarðlífs hinsta andvarp af mér líður
og eldingin mig lýstur er það víst:
;,: Þá ríkir fegurðin;
já, fegurð alvalds ástar;
fegurðin, sem engin orð fá lýst;,;
Ég lyftist upp til andans háu fjalla
og óma sinfóníu Drottins nýt
Við ljúfan englasöng er lúðrar gjall
ég lýt þeim örlögum er taka hlýt.
Ég fer þangað sem friðurinn mér veitist.
Til ferðalagsins mikla er ég býst.
:,: Þar ríkir fegurðin;
já, fegurð alheimsandans,
fegurð Guðs, sem engin orð frá lýst ;,;
![]() |
Roger Whittaker látinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 19.9.2023 kl. 00:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Hláleg mótsögn blasir bæði okkur sjálfum og öðrum þjóðum þegar það tvennt gerist á sama tíma að við aukum útblástur gróðurhúsalofttegunda og drögum saman í raun framlög til umhverfismála.
Samhliða blasir við öllum mótsögnin, sem felst í því að hlutdeild erlendra stórfyrirtækja í íelenskri orku heldur áfram að vaxa upp fyrir 80 prósent á sama tíma sem dagleg síbylja kveður við um það að íslensk heimili og fyrirtæki þurfi meiri orku.
![]() |
Ný fjárlög ráðstafi minna fé í umhverfismál |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
17.9.2023 | 10:28
Gildi smærri salanna vill oft gleymast.
"Það geta´ekki allir verið gordjöss" söng Páll Óskar, og á ferli margs góðs tónlistarfólks og annarra listamanna og fyrirlesara reynast litlir salir á borð við Hannesarholt notadrjúgir, og einnig góðir salir af smærri gerðinni eins og Salurinn í Kópavogi.
Þeir sem standa að rekstri slíkra sala mega ekki gleyma því hve mikið gagn þrirra og gildi getur oft verið fyrir lista- og menningarlíf í landinu.
![]() |
Lítill áhugi meirihlutans á starfsemi Salarins |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um það hvaða stöðu Kári Stefánsson hefur meðal læknavísindamanna heims þarf varla að deila.
Enn er í minni þegar hann var útefndur sem einn af hundrað áhrifiamestu læknavísindamanna heims.
Það má ekki láta það trufla sig, þótt sumum finnist hann stundum full góður með sig sjálfur, heldur líta á ævistarfið raunsæjum augum.
![]() |
Kennslanefnd rugluð í kollinum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
16.9.2023 | 08:56
"Land, þjóð og tunga; þrenning sönn og ein..."
á þeim tólf árum, sem liðin eru síðan þjóðin kaus sé nýja stjórnarskrá, í þjóðaratkvæðagreiðslu, sem Alþingi hefur komið sér undan að fara eftir, hefur ríkt slík stórsókn enskrar tungu, að til ófarnaðar horfir.
Við blasir að staða íslenskrar tungu er orðin verri en hún var gagnvart dönskunni þegar verst lét á 19. ðld. Verst er að Íslendingar eru í vaxandi mæli orðnir ófærir um að hugsa á íslensku, heldur verða æ meira að leita að íslenskunni í huga sér ef þeir ætla að tala hana.
"Land, þjóð og tunga; þrenning sönn og ein..." orti Snorri Hjartarson, og á Degi íslenskrar náttúru hlýtur sú þrenning að eiga skýran sameiginlegan sess.
Uppröðun skáldsins er rökrétt; land - þjóð - tunga. Landið er forsenda þjóðarinnar og þjóðin aftur á móti forsenda fyrir tungunni.
![]() |
Okkur beri skylda til að varðveita íslenskuna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)