Litla gula hænan: "Ekki ég."

Nú liggur fyrir einróma samtakavilji ráðamanna jarðarbúa að hver um sig standi sig í því heima fyrir að koma í veg fyrir mðguleika til að taka á loftslagsmálum og auðlindamálum heima fyrir, og þar með almennt. 

Táknrænt var að uppgjafarfundurinn fyrir vandanum var haldinn í landi, þar sem stóri, stóri vandinn, skefjalaus mannfjölgun, er við völd sem aldrei fyrr. Skammt er í að Indland verði fjölmennasta ríki heims. 

Litla Ísland lætur ekki sitt eftir liggja í að blása í glæður mannfjölgunar og því meiri útblástur gróðurhúsalofttegunda, sem meira er tönnlast á loforðum um það gagnstæða. 

Blásið er í glæðurnar fyrir krónuna, minnsta gjaldmiðil heims, með því að stefna til nýrra hæða í einhverju mest mengandi fyrirbæris nútímans, siglingar og útgerð risa skemmtiferðaskipa. 

Löngum var sagan um litlu, gulu hænuna skyldulesning í íslenskum skólum.  

Hún lifir nú betra lífi en nokkru sinni fyrr. 


mbl.is Vonsvikinn eftir loftslagsráðstefnu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mjög góð og fjölbreytt samfelld reynsla af rafhjólum í átta ár.

Frá fyrstu ferðunum á rafhjóli 2015, sem spönnuðu vega- og gatnakerfið milli Akureyrar og Reykjavíkur og reykjavíkur og Hvolsvallar og Krýsuvíkur auk Gullnahringsins hefur reynslan af þeim verið miklu betri ren þorað var að vona í upphafi. Náttfari og Léttfeti.

Allan tímann hafa verið farnar ferðir víðsvegar um höfuðborgarsvæðið. 

Lengstu ferðirnar voru blandaðar með ferðum án fótanotkunar, og um þessar mundir er byrjað á vegum þessarE bloggsíðu að bæta við einni gerð af fjórum, rafhjóli með 25 km hámarkshraða og væntanlega allt að 130 km drægni án fótanotkunar og fullum 25 km hraða upp bröttustu brekkur.  

Hér á landi skortir kerfi fyrir  útskiptanlegar rafhlöður likt og finna má erlendis, en hafin er bylting í gerð rafhjóla í þeim efnum.  


mbl.is Brekkur ekkert mál á rafmagnshjólinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 28. júlí 2023

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband