Friðsælasti staðurinn ?

Í fjölmörgum söngvum um útiveru í náttúrunni er sungið um friðsæld og fegurð, sem sé eftirsóknarverð.

Þessar hendingar og söngvar lokka fólk út úr skarkala borgarinnar til að leita að því sem indversk skákkona finnst hún hafa fundið á Íslandi frekar en í öðrum löndum. 

Sumarleyfi sín notar fólk gjarna til að fanga þetta og fer þá víða langt út úr ysnum og þysnum, til dæmis í gönguferðir um Hornstrandir eða fáfarnar slóðir á hálendinu. 

Um helgar og þá einkum verslunarmannahelgina snýst þetta við. Þá dynur á landsmönnum mikið auglýsinga- og ekki síður fréttaflóð stanslauss áróðurs þeirra sem standa að hátíðahaldi og samkomum um allt land.

Nánir útlistun á þessu er að finna á tónlistarspilaranum til vinstri hér á síðunni í laginu "Á flandri" sem við Andri Freyr Viðarsson syngjum. 

Ég er staddur við að skemmta á einum slíkum hátíðarstað, Síldarævintýrinu á Siglufirði, þar sem nú eru um 5000 manns og fjörið og stemningin líkir eftir uppganginum sem var hér á síldarárunum þegar rúmlega 3000 manns áttu hér búsetu. 

Fjörðurinn og fjöllin skapa fallega umgjörð um þetta alveg er einstakt að koma fram á dekki eins af gömlu síldarbátunum sem liggur við bryggju inni í Sildarminjasafninu. Þar var stundað ákaflega skemmtilegt afbrigði af brekkusöng í gærkvöldi, sem kallast mætti bryggjusöngur. 

Sefjunarmáttur beinna og óbeinna auglýsinga um hátíðirnar er mikill og fólk þyrpist saman að því er virðist tll þess að vera í sem mestu fjölmenni, hávaða og látum. 

Þeir, sem leita eftir friðsæld og fegurð gætu þá vel farið til Reykjavíkur þar sem þessi tvö hugtök njóta sín um verslunarmannahelgina enda er þar eitt stærsta ef ekki stærsta skóglendi Íslands og fjöll og eyjar spegla sig í Kollafirðinum ef vel viðrar. 

Benda má á það að hlýjasti veðurmælingastaður á Íslandi í júlí er Elliðaárstöð og þar í grennd er fallegt göngusvæði. Einnig í Reykjanesfólkvangi ef menn vilja leita aðeins lengra.


mbl.is Borgin eins og á virkum degi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Frekast hefði ég viljað vera á göngu um Sönghofsdal, með góðum vini, að skoða málverk og skúlptúra náttúrunnar.....

Víðir (IP-tala skráð) 1.8.2010 kl. 22:28

2 identicon

Minn draumur hefur verið sá að fara til Borgarfjarðar-Eystri en þaðan er ég ættuð. Fegurðin á Austfjörðunum er nefnilega engu lík og þegar maður kemst í nálægð við hana vill maður helst ekki fara aftur á mölina :)

Brynja (IP-tala skráð) 2.8.2010 kl. 00:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband