Nú á að vera hægt að minnka verulega hættu á truflun.

Mikið öskufall var í Heklugosinu 1947 og féll aska þá meðal annars í Skotlandi. Þá hafði fjallið ekki gosið í 100 ár og því mikið af uppsafnaðri kviku og orku undir fjallinu.

Gosin 1970, 80-81, 91 og 2000 voru mun minni, enda fimm- til tífalt styttra á milli gosa en áður hafði verið. IMG_0032 

Í flugi mínu með vísindamenn á TF-TAL með íslensk mælitæki til að mæla öskumagn í lofti í Grímsvatnagosinu 2011 kom í ljós, að það var ekki fyrr en skyggni var komið niður í 4-5 kílómetra af völdum öskumengunar, sem öskumagnið fór yfir þau viðmiðunarmörk sem notuð eru varðandi flugbann.IMG_0031

Í tvo daga tókast að halda flugvöllum á suðvestanverðu landinu opnum þótt spátölva í London gæfi það út að þeir skyldu vera lokaðir vegna öskumengunar sem aldrei lét sjá sig.  IMG_0036

Af því má ráða að óþarfi hafi verið að loka íslenskum flugvöllum í Eyjafjallajökulsgosinu 2010.

Mælitækin, sem smíðuð voru eftir forskrift Jónasar Elíassonar prófessors, hafa síðan verið notuð í Japan og fengið alþjóðlega viðurkenningu.

Þegar Hekla gýs er næsta víst að hægt verði að nota þessi tæki að nýju og komast hjá móðursýkislegum viðbrögðum tölvu í 2000 kílómetra fjarlægð til stórtjóns fyrir íslenskt flug og flutninga á fólki og fiski.

Það er því góð von til þess að ekki þurfi að koma til flugbanns ef Hekla gýs, nema að afar takmörkuðu leyti.    


mbl.is Væntanlega mun minni áhrif á flug
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Briem

Móðursjúk tölva.

Góður!!!

Þorsteinn Briem, 29.3.2013 kl. 19:27

2 identicon

Er málið ekki pínu flóknara, Ómar?

Askan úr Eyjafjallajökli skemmdi hreyfla í þotum finnska flughersins, 2000 km í burtu.

Ætli skyggnið þar hafi verið 4 - 5 km?

.

Fínleiki, þéttleiki og samsetning öskunnar ræður mestu um hversu hættuleg askan er fyrir flugvélahreyfla.

Þú talar um móðursýkisleg viðbrögð. Það er hraustlega orðað.

Þarna var flugöryggið látið njóta vafans, í óvissu ástandi.

Í dag erum við vonandi með aðferðir til að meta hættuna og lágmarka truflanir.

einsi (IP-tala skráð) 29.3.2013 kl. 22:57

3 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Síðasta setningin hjá þér er einmitt um það sem þessar íslensku mælingar snúast, #að meta hættuna og lágmarka truflanir."

Veðrið þessa tvo daga, sem átti að loka flugvöllum á vestanverðu landinu 2011 var þannig að Snæfellsjökull sást frá Reykjavík, heiður og tær í heiðríkjunni og hátt yfir Faxaflóa sást alla leið norður um Vestfirði og norður á Húnaflóa.

Flugvélin var nær stanslaust á lofti allan tíman sem tölvan í London heimtaði flugbanna og það var aldrei nein aska í loftinu, enda sýndu mælarnir aðeins einu sinni örlítið frávik frá hreinu lofti. Það var þegar ég flaug yfir Hellisheiðarvirkjun í 1500 feta hæð yfir virkjuninni! 

Ég kalla það bara móðursýki ef tölvuspár í London hefðu fengið að ráða því að loka fyrir allt flug á Íslandi þessa daga, en það hefði verið gert ef þetta hundódýra íslenska mælingaflug hefði ekki verið flogið.

Flugvellirnir sem fengu að vera opnir dagana tvo 2011, voru opnir í Eyjafjallajökulsgosinu 2010, þegar öskufallið var langmest, en lokaðir þegar öskumisturs varð varla vart, bara af því að tölvuspá í London bar ekki saman við raunverulegt ástand.

Þess má geta að öskumagnið í 4-5 kílómetra skyggninu í Ölfusi stóðst flugöryggskröfur EASA sem maður hefði haldið að væru miðaðar við það að flugöryggið væri látið njóta vafans.    

Ómar Ragnarsson, 30.3.2013 kl. 00:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband