Kemur ein sala á dag öllu í lag? "Seljum fossa og fjöll"?

Í gær var frétt um kaup Indverja, sem sveipaður er dul, á skika fyrir vatnsverksmiðju á Borgarfirði eystra. Ekki fyrsta vatnsævintýrið og ekki fyrsti erlendi landakaupamaðurinn, því að ekki eru nema nokkrir dagar síðan Grímsstaðir á Fjöllum voru seldir og ríkisvaldið hundsaði áskoranir um að jörðin yrði þjóðareign.

Til lítils var það fyrir okkur, tvo bloggara hér á blog.is, Styrmi Gunnarsson og mig, að skrifa ásamt fjölda Íslendinga undir áskorun um að gæta landsins okkar.  

Í dag er það Fjaðrárgljúfur, sem er til sölu, og það yrði í stíl við annað ef þetta einstæða gljúfur færi sömu leið og svo margt söluvænt fer um þessar mundir. 

Vitað er að erlendir fjárfestar eru á góðri leið með að eignast smám saman heilt hérað, Vopnafjörð. 

Danir settu undir svona leka þegar þeir gengu í ESB og gátu fengið undanþágu til að tryggja samsvarandi eignarhald dönsku þjóðarinnar á dönsku landi og bústöðum. 

En í EES-samningnum var ekki um neitt slíkt að ræða, við vorum sennilega ekki í neinni aðstöðu til þess og erum það sennilega ekki að setja nein skilyrði, verðum bara að taka sjálfvirkt frá tilskipunum, sem eru ákveðnar við samningaborð, sem við eigum enga aðild að. 

Dropinn holar steininn, segir máltækið, og með svipuðu áframhaldi kunnum við að vakna upp við vondan draum. 

Þetta slapp fyrstu 20 árin í EES en nú eru hugsanlega að renna upp nýir tímar, sem leiða hugann að því sem Flosi Ólafsson söng hér um árið: 

"Seljum fossa og fjöll! /

Föl er náttúran öll!  /

Og landið mitt taki tröll!" / 


mbl.is Nota Bieber í íslenskri auglýsingu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Jarðir, fossar og fjöll hafa gengið kaupum og sölum frá landnámi. Og þrátt fyrir landlæga útlendingahræðslu þá breytir það engu fyrir mig sem venjulegan Íslending hvort eigandi jarðar heitir Jón eða John. Ég hef engan sérstakan hag af því að Jón sé eigandinn og tapa ekki neinu á því að John sé eigandi. Ástæðulaus og órökstudd hræðsla einhverra breytir því ekki. Útlendingar eru ekki tröll þó Flosi hafi fyllst hræðslu.

Hábeinn (IP-tala skráð) 29.12.2016 kl. 02:07

2 Smámynd: Eyjólfur Jónsson

Ómar farðu bara inná þetta upphróp á blogginu mínu og vertu með frá firstu mínótu.

Eyjólfur Jónsson, 29.12.2016 kl. 02:13

3 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Jarðir, fossar og fjöll hafa líka gengið kaupum og sölum í Bandaríkjunum, landi frelsisins, frá landnámi hvítra manna. Engu að síður hafa helstu náttúruundur þess lands verið gerð að þjóðareign og þjóðgörðum. 

Eða hvers vegna hafa Danir gert það varðandi kaup útlendinga sem Íslendingar hafa ekki gert?

Ómar Ragnarsson, 29.12.2016 kl. 11:38

4 identicon

Á ríkið þá að kaupa hvern skika sem kemur á markað? Það er eina leiðin til að koma í veg fyrir að einhverjir sem þú telur óæskilega kaupi.

Og þurfum við að apa allt eftir öðrum? Reglur Dana hafa ekki allar vakið hrifningu og orðið fyrirmynd í öðrum löndum. Ættum við e.t.v. að fara alla leið og taka einnig upp dönsku og selja bjór án aldurstakmarkana? Hvers vegna Danir gera eitthvað veit ég ekki og ég veit heldur ekki hversvegna við ættum að gera eins. Ég þarf betri rök en "Danir gera það".

Hábeinn (IP-tala skráð) 29.12.2016 kl. 12:41

5 Smámynd: Þorsteinn Briem

"Aðilar, sem njóta réttar hér á landi samkvæmt reglum samningsins um Evrópska efnahagssvæðið (EES) eða stofnsamnings Fríverslunarsamtaka Evrópu (EFTA) um frjálsa för fólks, staðfesturétt, þjónustustarfsemi eða fjármagnsflutninga, geta öðlast heimild yfir fasteign hér á landi án leyfis dómsmálaráðherra, enda þótt þeir uppfylli ekki skilyrði 1. mgr. 1. gr. laga um eignarrétt og afnotarétt fasteigna."

Reglugerð um rétt útlendinga, sem falla undir samninginn um Evrópska efnahagssvæðið eða stofnsamning Fríverslunarsamtaka Evrópu, til að öðlast eignarrétt eða afnotarétt yfir fasteignum, nr. 702/2002

Á Evrópska efnahagssvæðinu eru Evrópusambandsríkin, Ísland, Noregur og Liechtenstein og í EFTA eru Ísland, Noregur, Sviss og Liechtenstein.

"Fasteign merkir í lögum þessum afmarkaðan hluta lands ásamt lífrænum og ólífrænum hlutum þess, réttindum sem því fylgja og þeim mannvirkjum sem varanlega er við landið skeytt."

Jarðalög nr. 81/2004

Þorsteinn Briem, 29.12.2016 kl. 15:16

6 Smámynd: Þorsteinn Briem

Útlendingar, til að mynda Kínverjar, geta nú þegar átt helminginn af öllum aflakvóta íslenskra fiskiskipa en útlendingar hafa mjög lítið fjárfest í íslenskum sjávarútvegsfyrirtækjum.

23.11.2010:


"Friðrik J. Arngrímsson, [nú fyrrverandi] framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að lögin hafi alltaf verið skýr varðandi erlent eignarhald í sjávarútvegi.

"Erlendir aðilar mega eiga allt að 49,99% óbeint, þó ekki ráðandi hlut, og svona hafa lögin verið lengi," segir Friðrik."

"Nefnd um erlenda fjárfestingu hefur að undanförnu fjallað um málefni sjávarútvegsfyrirtækisins Storms Seafood sem er að hluta til í eigu kínversks fyrirtækis, Nautilius Fisheries.

Eignarhlutur Kínverjanna er
um 44%, beint og óbeint.

Og niðurstaða nefndarinnar er að það sé löglegt."

Þorsteinn Briem, 29.12.2016 kl. 15:17

7 Smámynd: Þorsteinn Briem

"Til­raun­ir kín­verska fjár­fest­is­ins Huangs Nu­bos til þess að kaupa jörðina [Grímsstaði á Fjöllum] fóru út um þúfur um árið og hef­ur jörðin verið aug­lýst til sölu á Evr­ópska efna­hags­svæðinu."

Enginn stjórnmálaflokkur sem á sæti á Alþingi vill segja upp aðild Íslands að Evrópska efnahagssvæðinu.

Útlendingar geta eignast allar jarðir hér á Íslandi og helminginn af öllum aflakvóta íslenskra fiskiskipa strax í fyrramálið ef þeir nenna því.

Þorsteinn Briem, 29.12.2016 kl. 15:18

8 Smámynd: Þorsteinn Briem

8.4.2013:

"Stefan Füle stækkunarstjóri Evrópusambandsins kveðst hafa fullan skilning á sérstöðu Íslands um bann við innflutningi á lifandi dýrum og sagði að fullur vilji væri til að taka tillit til hinna sérstöku aðstæðna sem ríktu á Íslandi um dýra- og plöntuheilbrigði."

"Á fundinum lýsti stækkunarstjórinn yfir að Evrópusambandið væri nú reiðubúið að hefja viðræður við Íslendinga um kaflann um matvælaöryggi og dýra- og plöntuheilbrigði á grundvelli samningsafstöðu Íslendinga.

Stækkunarstjórinn sagði að Íslendingum hefði tekist vel að koma sérstöðu sinni á framfæri."

"Í samningsafstöðu Íslendinga eru settar fram skýrar kröfur um að við myndum viðhalda banni á innflutningi á lifandi dýrum."

Þorsteinn Briem, 29.12.2016 kl. 15:19

9 Smámynd: Þorsteinn Briem

Skýrsla Evrópunefndar lögð fram af Geir H. Haarde, þáverandi forsætisráðherra, í mars 2007, bls. 77-79:

"Varanlegar undanþágur og sérlausnir:"


"Komi upp vandamál vegna ákveðinnar sérstöðu eða sérstakra aðstæðna í ríki sem sækir um aðild að Evrópusambandinu er reynt að leysa málið með því að semja um tilteknar afmarkaðar sérlausnir.

Eitt þekktasta dæmið um slíka sérlausn er að finna í aðildarsamningi Danmerkur árið 1973 en samkvæmt henni mega Danir viðhalda löggjöf sinni um kaup á sumarhúsum í Danmörku.

Í þeirri löggjöf felst meðal annars að aðeins þeir sem búsettir hafa verið í Danmörku í að minnsta kosti fimm ár mega kaupa sumarhús í Danmörku en þó er hægt að sækja um undanþágu frá því skilyrði til dómsmálaráðherra Danmerkur."

"Ekki er hins vegar um að ræða undanþágu eða frávik frá banni við mismunum á grundvelli þjóðernis og íbúar annarra aðildarríkja sem uppfylla skilyrði um fimm ára búsetu geta því keypt sumarhús í Danmörku."

Í þessu tilviki "er í raun um að ræða frávik frá 56. grein stofnsáttmála Evrópusambandsins, sem bannar takmarkanir á frjálsu flæði fjármagns."

"Mikilvægt er að hafa í huga að aðildarsamningar að Evrópusambandinu hafa sömu stöðu og stofnsáttmálar sambandsins og því er ekki hægt að breyta ákvæðum þeirra, þar á meðal undanþágum eða sérákvæðum, sem þar er kveðið á um, nema með samþykki allra aðildarríkjanna [í þessu tilviki einnig Danmerkur]."

Þorsteinn Briem, 29.12.2016 kl. 15:19

10 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Takk fyrir þennan málefnalega fróðleik, Steini. 

Ómar Ragnarsson, 29.12.2016 kl. 21:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband