"Já, ráðherra" eða "nei, ráðherra"?

Vald einstakra ráðherra á Íslandi er mun meira en víðast annars staðar. Í tímans rás hefur þróunin verið sú að ráðherrar hafa forðast að amast við gjörðum hvers annars og komist hjá því að eða ábyrgð á öðrum ákvörðunum en þeirra eigin. 

Í þessu felst nokkurs konar samtrygging. Ef þú lætur mig í friði skal ég láta þig í friði. 

Í frumvarpi stjórnlagaráðs er þetta atriði, ráðherraábyrgð, gert skýrt. Ef ráðherra aðhefst ekkert varðandi verknað annars ráðherra, ber hann jafnmikla ábyrgð á því. 

Ef hann vill losna við að sæta þessari samábyrgð, verður hann að gera það skýrt með bókun. 

Spurning er hvernig mál Sigríðar Á. Andersen stæði, ef þessu hefði verið svona varið þegar hún breytti út af lista hæfnisnefndar. 

Álit sérfræðinga hefði þá kannski vegið þyngra þótt það sé ljóst, að sérfræðingar í ráðuneyti geta ekki tekið valdið af ráðherra. 

Ef þeir hefðu sagt: "já ráðherra" varðandi það að hún þyrfti ekki að leggja sjálfstætt mat á alla umsækjendur stæði Sigríður betur að vígi nú.

En enda þótt þeir segðu "nei, ráðherra", hafði ráðherra valdið en ekki sérfræðingarnir. 

En álit þeirra hefði þó verið í samræmi við dóminn sem síðar féll í málinu og er nú til vandræða.  

 

 


mbl.is Sérfræðingar vöruðu Sigríði við
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband