Umbreytingar gefa oft ný tækifæri.

Það, sem hefur verið að gerast á tónlistarsviðinu síðasta ár felur í sér mestu umbreytingar, sem orðið hafa á starfsumhverfinu, sem tónlistarfólk hefur upplifað í meira en 70 ár, eða síðan vinyl-platan ruddi sér til rúms. 

Þessar umbreytingar hafa verið svo hraðar og miklar, að nú ríkir viss óvissutími, sem getur að vísu verið erfiður, af því hann kemur kjöfar ákveðins hruns og niðursveiflu, en engu að síður fela miklar breytingar oft í sér ný tækifæri, sem geta á endanum orðið til góðs. 

Á meðan á þessu stendur ríkir hins vegar óvissa og spenna. 

Vinyl-platan ríkti í 40 ár, með nokkrum umbreytingum. Það var mikil framför fólgin í því að fara úr 78 snúningum niður í 45 seint á sjötta áratugnum og gera mögulegt að gefa út fjögurra laga plötur, og tíu árum síðar varð enn stærri breyting með tilkomu 33ja snúninga platna, sem gáfu möguleika á 2ja laga, 4ra laga og á breiðskífum með möguleika á á annan tugs laga. 

Geisladiskurinn drap síðan plötuna á örfáum árum á áttunda áratugnum og gaf möguleika á meira en tuttugu lögum á diski og hátt í hundrað lög í fjögurra diska albúmum. 

Orðið plata eða diskur eru samt enn notuð um útgáfur á tónlist, þótt hljómdiskamarkaðurinn hafi hrunið á aðeins rúmum tveimur árum. 

Það sýnir hraða þróun síðustu 50 ár, að þegar platan "Í hátíðarskapi" var gefin út 1980, var það gert á síðustu stundu þegar það vitnaðist, að annars yrði engin stór jólaplata gefin út það árið. 

Það kom hins vegar fram um áramótin, að Rás tvö bærust um 300 plötur á ári, en aðeins væri hægt að taka 50 þeirra til umfjöllunar árlega, en sleppa 250 í þeim efnum. 

Þegar sölumöguleikar diskanna hafa hrunið að mestu, sést hve gríðarleg áhrif það hefur haft. 

Og einnig sést á þeim uppátækjum sem tónlistarfólk hefur gripið til, til þess að koma list sinni á framfæri og hafa eitthvert viðurværi af henni, að það er verið að hræra hressilega upp á listasviðinu. 

Bubbi gaf út ljóðabók, því að bókin heldur enn velli að miklu leyti, Páll Óskar fór með 300 eintök af diskum persónulega heim til hvers kaupanda og áritaði, Egill Ólafsson setti takmarkaðan fjölda á vinyl og áritaði, af því að falleg vinylplata er eigulegur gripur, nokkuð sem einn usb-lykill getur seint orðið. 

Og Stuðmenn settu sitt nýja efni inn í eigulegan og óvenjulegan grip, svokallaðan Astraltertukubb. 

Og með því voru grafískir hönnuðir komnir inn í skemmtilegt og gefandi verkefni, listasmíð. 

Sjálfur fór ég með hljómflutningstæki á litlu sparneytnu og hraðskreiðu vespuhjóli í snarpa 2000 kílómetra kynningar- og hljómleikaferð vit markhópsins, fólks á ferð um landið á bílum með diskaspilurum, sem var kannski til í að setja ferðavæna tónlist i spilarann.  

Og nú er tónlistarfólk að leita nýrra leiða svo sem að láta aðgöngumiða að útgáfutónleikum fylgja fylgja hljómdiskum, og til dæmis er ég að undirbúa að framkvæma nýja hugmynd í leit að nýjum lausnum. 

Og sagan sýnir að nýjar aðstæður örva oft þróun, sem á endanum leiðir til nýs og örvandi umhverfis fyrir listafólk. 


mbl.is Bolurinn farinn að kaupa vínyl
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll Ómar.

Þetta ástand á tónlistarsviði einkennist
af tilvistarkreppu því svo virðist að fáir
ef nokkrir hafi nokkuð fram að færa.

Húsari. (IP-tala skráð) 23.1.2018 kl. 18:13

2 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Þetta er býsna einföld ályktun hjá þér, Húsari. 

Ég hélt þú vissir, að orsökin er einföld og eldgömul: Allt í einu er kominn fram möguleiki til að nota verðmæti að kostnaðarlausu, að hlaða niður kvikmyndum og tónlist ókeypis.   

Með tilkomu netsins hefur fólk einmitt nýtt sér möguleikana til að krækja í stórum stíl ókeypis það sem tónlistarfólkið hefur fram að færa. 

Ef þetta efni væri svona lélegt eins og þú gefur í skyn, væri þetta stórfellda niðurhal ekki í gangi. 

Ómar Ragnarsson, 23.1.2018 kl. 20:43

3 identicon

Sæll Ómar.

Það hefur ekkert fram að færa!
Og ég efa það stórlega að á tónlistarsvið fari
fram niðurhal á einhverju efni útgefnu af nýrri höfundum
á seinustu 20 árum.
Þetta eru ekki annað en fjöll af rusli, sannkallaðir ruslahaugar;
þó svo að borgað væri með þessu vildi ég ekki sjá það.
Eftirtektarvert er að þú nefnir tónslistarmenn í texta þínum
sem trúlega eru um fimmtugt eða nokkru eldri.

Bubbi Morthens, sannkallaður listamaður af Guðs náð og síðan
Stuðmenn. Hvar eru hinir 9?!!

Húsari. (IP-tala skráð) 24.1.2018 kl. 07:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband