Þetta er hugsanlega langhlaup með vigtun tvisvar á dag.

Þegar bestu hnefaleikamenn heims koma sér í toppform sem endist árum saman eru hraðir léttingarkúrar ekki leiðin til þess, heldur líta þeir og þjálfarar þeirra á verkefnið sem eins konar langhlaup í eftirsókn eftir besta og stöðugasta jafnvæginu á milli þyngdar og blöndu af sprengikrafti, afli, snerpu, hraða og bæði skammtíma og langtíma úthaldi. 

Vigtað er dag frá degi, helst tvisvar á dag. Samfelld vigtunin er mikið atriði, rétt eins og millitímar í löngum hlaupum.  

Það verður að vera fyrir sem samfelldust og best vitneskja um ástand mála hverju sinni. 

Áratuga grúsk síðuhafa í gögnum um hnefaleikameistara í 140 ár hefur gefið vissa mynd af viðfangsefni hinna miklu meistara sem draga má ályktanir af.

Eitt þessara atriða er sá vandi, sem bæði mikil þynging, mikil létting og breyting á hreyfingu geta skapað.

Dæmin eru mýmörg: Jim Jeffries 1910, 40 kílóa þynging-létting, Jack Johnson 1911-1915 þynging, Jack Dempsey 1923-1927 hóglífi, Muhammed Ali 1967-1971 hóglífi, Roy Jones jr.2000 15 kíló þynging-létting, Prins Naseem-Hamed 1999 þynging-/létting, Lennox Lewis 2002 þynging.  

Þau dæmi eru athyglisverðust þar sem menn þyngdust á tímabili og mistókst að endurheimta fyrri hraða.

Í nóvember sl.var keypt vigt á heimilið og hafin samfelld vigtun kvölds og morgna sem gaf færi á því að fylgjast náið með framvindu  þess verkefnis að létta sig um 12 kíló á 6 mánuðum.

Fylgst vel með kalóríunum en enginn "bannlisti" í gangi né langvinn svelti.

Það þýðir aðeins hálft kíló í léttingu á viku, en þá hjálpar vigtin til við að hafa stjórn á hlutunum.

Fyrir jól fuku 7 kíló, en 2 komu til baka yfir hátíðirnar.

Meiðsli síðan 2. janúar hafa breytt aðstæðum og skapað vissa óvissu, en eitt kíló er þó fokið á tveimur vikum þrátt fyrir óhjákvæmilegan samdrátt í líkamlegri þjálfun.     


mbl.is Missti 8 kíló á 15 dögum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Halldór Jónsson

Dattstu nú á árans hjólinu?

Halldór Jónsson, 15.1.2019 kl. 02:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband