Tveir nýir markhópar fyrir rafbíla; 1,2 millur og 2,6 millur.

Fram að þessu hefur það verið algengasta hindrunin í að kaupa rafbíl að verðið sé alltof hátt. DSC09574

Verðið á meðalstórum rafbílum er frá fjórum milljónum og ódýrasti bíllinn hefur verið 3,6 milljóna króna bíll, Volkswagen e-Up, fjögurra sæta furðu rúmgóður bíll með drægni vel á þriðja hundrað kílómetra. 

Það tekur klukkustund að hlaða bílinn í hraðhleðslustöð á ferðalagi, en það ætti varla að vera frágangssök. 

Í flestum löndum stefnir í vaxandi umferðaröngþveiti vegna sífelldrar fjölgunar og stækkunar einkabíla, og hið sama er að gerast hér á landi. Citroen Ami ofan frá 

Búist er við að í takti við komandi íbúafjölgun á höfuðborgarsvæðinu muni þurfa að búast við fjölgun um 20 þúsund sístækkandi bíla á næsta áratug, og það blasir við að fjárhagslega og tæknilega er einfaldlega ekki hægt að svara stóraukinni þörfum fyrir gatnamannvirki sem anni þörf svona stórstækkandi bílaflota.   

En erlendis er þegar hafin bylting í bæjarsnattinu með minni og ódýrari rafbílum jafnframt skiptikerfum fyrir færanlegar rafhlöður í rafknúnum léttbifhjólum. 

Renault-Nissan hafa þegar selt 30 þúsund snattara af gerðinni Twisy, sem er aðeins 2,34 x 1,23 m og geta fjórir bílar komist þversum fyrir í einu bílastæði eins og sést á mynd hér fyrir ofan. Hver bíll er með 4 punkta bílbelti og uppblásanlegan líknarbelg. 

Myndir númer 2 og 3 að ofan eru hins vegar af rafsnatta af gerðinni Citroen AMi. DSC09597Þar sitja tveir hlið við hlið 

Twizy var frá upphafi ætlað að leysa vélhjól af hólmi og er því án hurða á verði í kringum 1,5 millur. Í honum situr farþegi aftan við bílstjórann eins og á vélhjóli. 

Hægt er að kaupa hurðir sem opnast beint upp eins og á McLaren og taka því ekkert rými auk hitunar búnaðar, en við þetta rýkur verð bílsins upp í 1,8 milljónir króna. J

Citroen verksmiðjurnar hafa því farið aðra leið og bjóða upp á bíl sem tekur svipað rými á malbikinu, 2,41 x 1,39 m, snýr sér næstum á punktinum með aðeins 7,2 m þvermál beygjuhrings en er bæði fokheldur og vatnsheldur og með upphitun.  DSC09553

En til þess að koma verðinu niður þurfti byltingarkenndar aðferðir: Þrjár þær fyrstnefndu eru einkum notaðar til þess að létta bílinn sem mest og gera hann sem sparneytnastan. 

1. Einföld gerð, notkun endurnýjanlegs plasts að mestu og hafa sem fæsta og léttasta nytjahluti, eina þurrku, eitt aflstig, enga rúðuupphalara eða venjulega húna heldur einfalda gagnsæja lúgu á lömum eins og í Bragganum. Bilinn opnaður utan frá með því að ýta á takka, en innan frá með því að toga í ól.  

2. Lítil rafhlaða, aðeins 5,5 kílóvattstundir, 60 kíló, tíu sinnum léttari en í meðal rafbíl. Tekur aðeins þrjár klukkustundir að fullhlaða hana í venjulegu íbúðarafmagni. En nægir þó til að gefa um 55 km drægni samkvæmt ágiskun síðuhafa. Það á að nægja í fyrir meðtals innanbæjarakstur sem er um 33 km á dag. Einföld lausn: því minni rafhlaða, því léttari bíll; því léttari bíll, því minni rafhlaða. Invikta bílstjóra megin

3. Hámarkshraði 45 km / klst, aðeins 8 hefstafla mótor, sem er feykinóg, vegna þess að bíllinn er innan við 500 kíó á þyngd og þar með minni hætta á mikilli loftmótstöðu og orkueyðslu. Erlendis er virkjaður stór markhópur, allt niður í 14-16 ára unglingar mega aka svona hægfara farartækjum, sem þó í krafti lipurðar komast furðu vel og fljótt í gegnum umferðina og smjúga þversum inn í bílastæði. 

4. Einfaldari smíð hvar sem litið er, báðar hurðir nákvæmlega eins, líka afturendi og framendi, nema að ljósin eru rauð að aftan og hvít að framan. Á mynd hér að ofan sést, að hurðirnar verða að opnast sín í hverja áttina til þess þær geti verið eins báðum megin. Fyndið að horfa þvert í gegnum bílinn með opnar dyr, sætin eru á svipuðum stað og aftursætin í fjögurra manna bíl. 

5. Ferkantað lag og nógu hátt þak til hámarksnýtingar innanrýmis. Boðið verður síðar upp á sendibílsútgáfu. Invicta.Farangurs rými

6. Verð og reksturskostnaður þrefalt lægri en á ódýrustu rafbílum hingað til. Býður upp á kerfi til að leigja svona bíla til snatts fyrir lágmarks kostnað. 

Þetta síðasta er einfalt: Bílar af þessari stærð verða í sérflokki engrar samkeppni frá bílum af þeirri stærð sem hafa hingað til verið á boðstólum. 

Og sömuleiðis eru að koma til sögu 2ja sæta rafbílar sem falla inn í sérstakan markhóp miðja vegu milli Citroen Ami og Volkswagen e-Up í verði; 2,6 millur, sama og tveir Ami en með meiri þægindi en Ami, stærra skott, tvöfalt meira afl og tvöfalt meiri hámarkshraða og tvöfalt meiri drægni samkvæmt ágiskun síðuhafa við íslenskrar aðstæður. DSC09595

Þetta eru rafbílar af gerðinni Invicta ZDS2, en BL hefur fengið tvo til landsins.

Myndir nr. 4. 5. og 6 eru af Invicta bílnum, sem er 40 sm lengri en Ami og 11 sm breiðari, en neðsta myndin er af hinni óvenjulegu staðsetningu hleðslusúrunnar á Citroen Ami. 


mbl.is Bylting í bæjarsnattið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Halldór Jónsson

Óomar vinur minbn

hvaða bíll af þessum litlu heldurðu að sé bestur fyrir mig gamalt fífl sem á nóga aura fyrir hvaða dvergbílanna sem  er. Mega komast hratt (HP)á kostnað drægisins og helst að ég geti hlaðið hann á venjulegum tengli. Og ég er ekkert að spá í stærðina til að parkéra  mörgum í stæðið heldur má þetta vera sæilegur bíll ekki bara plastdrasl

Halldór Jónsson, 21.6.2021 kl. 12:52

2 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Mér sýnist þú vera í þeim markhópi, sen nefndur er í byrjun pistilsins, og hefur verið ódýrastur fram að þessu; Volkswagen e-Up.

Hann hefur verið í framleiðslu í nokkur ár sem bensínbíll og því komin góð reynsla á hann.  

Hann er furðu rúmgóður frammi í miðað við stærð og er með viðunandi sæti aftur í, og skottið er 250 lítrar. Einstaklega lipur í umferðinni. 

Ef þú ferð til Akureyrar þarftu bara eitt klukkustundar hleðslustopp á leiðinni fyrir bílinn og þig og verður að vara þig á Blönduóslöggunni, því að uppgefinn  hámarkshraði er 130 km/klst. 

Drægnin er furðu mikil og jafnvel meiri en á sumum stærri rafbílum, 260 kílómetrar samkvæmt WLTP mælikvarða, en 200 kílómetrar ættu að nást við íslenskrar aðstæður. 

Þegar þú ekur af stað á rafknúnum bíl, verðurðu steinhissa á viðstöðulausu upptaki, hraðari en tölur sýna, en hröðun upp í 100 km hraða er uppgefin 12,4 sekúndur, sem er feykinóg. 

Á verði frá 4 milljónum, þar sem til dæmis eru bílar eins og Ópel Corsa-e, Renault Zoe, Citroen C4 e og MG EV,  er gríðarlegt úrval af rafbílum.

Ef þú vilt að bílstjórasætið sé það hátt frá jörðu, að hægt sé stíga beint inn í og út úr bílnum eru ýmsir rafbílar áhugaverðar. 

Ómar Ragnarsson, 21.6.2021 kl. 19:01

3 Smámynd: Halldór Jónsson

Takk kærlega Ómar fyrir þetta

Halldór Jónsson, 22.6.2021 kl. 08:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband