Þarf ekki hamfaragos til að valda usla og fella Hvassahraunsflugvöll.

Þótt ekkert hamfaragos hafi orðið á Reykjanesskaga eftir ísöld, þarf ekki stórt gos til að valda miklum usla. 

Það sést best með því að skoða hraunin, sem runnu fyrir átta hundruð árum og þar á undan í kjölfar ísaldar. 

Fyrir átta hundruð árum opnaðist jörð í eldgosum til dæmis allt frá núverandi Suðurstrandavegi og norður til Óbrinnishóla skammt suður af Kaldárseli og austur af Straumsvík. 

Á strandlengjunni hafa hraun runnið út í sjó niður í Elliðaárvog, út á Alftanes og til sjávar á samfelldum kafla frá Völlunum syðst í Hafnarfjarðarkaupstað allt að Vogastapa. 

Keflavíkurflugvöllur og Reykjavíkurflugvöllur eru utan hættusvæðanna varðandi hraunflóð og á besta staðnum við sunnanverðan Faxaflóa, en við marga ókosti fyrirhugaðs Hvassahraunsflugvallar bætast nú hraunstraumar, sem runnið geta að nýju á allri ströndinni frá Völlunum og Straumsvík suður í Voga. 

Við hættu á hraunflóði bætast síðan hætta á eitruðu lofti og mengun. Engin gos á Reykjanesskaga hafa verið hamfaragos en samt nægir stærð þeirra til að valda miklu tjóni á innviðum helsta þéttbýlissvæðis landsins.   

 

 


mbl.is Engin hamfaragos hér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Já nú er eldgosajarðfræðin orðin stór pólitísk svona eins og pólitíska veðurfræðin! Vinstri menn hafa eina stefnu í eldgosamálum og hægri menn aðra. Hvað er næst - Pólitísk læknisfræði?

Þorsteinn Styrmir Jónsson (IP-tala skráð) 24.8.2022 kl. 17:16

2 Smámynd: Gunnar Heiðarsson

Held reyndar að eldgosafræðin séu ekkert pólitísk, Þorsteinn. Það sem skeð hefur er að nýr veruleiki er orðinn staðreynd á Reykjanesinu, veruleiki sem var svo fjarri flestum þar til eldar kviknuðu í Geldingadölum og síðan aftur í Merardölum.

Þetta er nýr veruleiki og sagan segir okkur að þetta gæti verið upphaf að löngu eldatímabili, með tilheyrandi hraunrennsli, á Reykjanesskaganum. Þetta er því ekki spurning um pólitík, heldur hvort við viljum læra af sögunni.

Gunnar Heiðarsson, 25.8.2022 kl. 07:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband