MESTU HETJURNAR.

Mestu hetjur sem ég þekki heyja hljóða baráttu við grimm örlög, flest þeirra á ýmsum stofnunun heilbrigðiskerfisins. Tveir menn, annar tengdur mér og hinn gamall starfsfélagi, berjast nú svipaðri baráttu og Ólöf Pétursdóttir gerði af slíkri reisn og krafti að aðdáun vekur. Hugur minn er hjá þessu fólki á degi upprisunnar, páskadegi.

Í mjög góðri grein um Bjarna Benediktsson í DV er eftirfarandi setning höfð efir Lao Tse: Sá sem sigrast á öðrum er sterkur. Sá sem sigrast á sjálfum sér er mikilmenni. Ólöf Pétursdótti var í þessum síðarnefnda flokki.

Eitt viðurkenndra mikilmenna heims er Muhammad Ali. Í byrjun var hann drýldinn og sjálfhverfur orðhákur sem stundaði sálfræðihernað gagnvart andstæðingunum sem var ekki alltaf til fyrirmyndar.

Nú um stundir telja frægustu rapparar heims hafa verið brautryðjandann mikla á því sviði.

Sem þungavigtarhnefaleikari bar hann af hvað snerti léttleika, hraða, snerpu, fegurð í hreyfingum og tækni. Hann þótti undur sem kemur kannski fram einu sinni á öld. En það var ekki það sem varð til þess að um síðir er upphaflegt gort hans um að vera "hinn mesti" viðurkennt í íþróttaheiminum.

Smám saman sótti aldurinn að honum, hraðinn minnkaði og síðustu keppnisárin sótti að honum dulinn andstæðingur, Parksinsonveiki, sem greindist ekki fyrr en löngu of seint.
En Ali notaði járnvilja sinn, útsjónarsemi, innsæi og aðlögunarhæfileika til að framlengja sigurgöngu sína í hnefaleikahringnum langt umfram það sem venjulegur maður hefði getað gert.

Ali tapaði fimm atvinnumannabardögum á ferli sínum en það var einmitt það hvernig hann tók þessum ósigrum og vann sig út úr þeim sem fullkomnaði myndina um "hinn mesta." Hann er líklega frægasti Parkinson sjúklingur heims en hefur sagt að hann líti á glímuna við þann sjúkdóm sem framhald af glímunni við andstæðingana í hringnum.

"Guð hefur lagt það verkefni fyrir mig að glíma við Parkinson og ég mun reyna mitt besta til að taka þeirri áskorun og ögrun eins og öllum hinum" segir Ali.

Tímaritið Time fékk færa sérfræðinga til að velja fyrir sig 100 mestu snillinga 20. aldarinnar. Eini íþróttamaðurinn í þeim hópi var Muhammad Ali. Snilldina mældu sérfræðingarnir ekki í gáfnavísitölum heldur alhliða framlegð þeirra á andlega sviðinu.

Hetjusnilldin er ekki einskorðuð við ráðamenn og frægt fólk. Þar sem ég sit og blogga þetta við glugga á Borgarspítalanum er ég þess meðvitaður að handan við vegginn kunni að leynast ein af mestu hetjum þessa lands sem berst sinni hljóðu baráttu á aðdáunarverðan hátt.

Slíkri baráttu barðist Ólöf Pétursdóttir síðasta hálfa aðra ár lífs síns inni á sjúkrastofnun. Megi ljós hennar lýsa okkur öllum nú þegar hún hefur kvatt okkur og skilið eftir sig dýrmætan arf.

Gleðilega páska!


mbl.is Ólöf Pétursdóttir látin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Það hlýtur að vera mikil viðbrigði fyrir orkubolta eins og þig að þurfa að dvelja á spítala. Gleðilega Páska, Ómar!

Gunnar Th. Gunnarsson, 23.3.2008 kl. 10:58

2 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Takk, Gunnar. Það er nú reyndar svo að það er verðugt verkefni að beisla orku sína í viðureign við sýkingu sem herjar hefur á mig og þurfti í fyrstu hana alla, en síðan á skírdag hef ég smám saman fengið aðgang að afgangsorku, sem ég hef nýtt til að hefja ritun á tveimur bókum, sem löngu var kominn tími á að ég byrjaði á.

Og spítalinn er tiltölulega friðsæll vinnustaður sem á sjálfvirkan hátt er búinn að ryðja frá ýmislegu daglegu áreiti sem annars krefðist þess að maður fengist við önnur verkefni, sem nú fá að bíða.

Ómar Ragnarsson, 23.3.2008 kl. 19:17

3 identicon

Sæll Ómar, það vona ég nú að þú verðir góður sem allra fyrst því gaman þykir mér

að lesa bloggið þitt, oft er deilt á sjúkraþjónustu hér á landi og vona ég að þú segir  

sögu af því, en ekki get ég annað en vonað að betur verði farið með geðsjúka hér á 

landi og best væri að byggja þak yfir amerikuseraðan Reyðarfjörð þá fengu þessir

álversunnendur viðhlýtandi hjálp. 

Ævar Oddur Ævarsson (IP-tala skráð) 24.3.2008 kl. 01:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband