Hinni nýi og endurvakti veruleiki.

Nýr veruleiki er að renna upp fyrir þjóðum Vesturlanda. Rússar eru að rísa úr öskustó og sætta sig ekki lengur við að vera hornreka, heldur láta nágrannaþjóðir sínar finna fyrir afli og veldi rússnekska bjarnarins. Olíu- og gasveldið vegur þar þyngst en ekki má heldur gleyma því að þeir eiga enn nógu mikið af kjarnorkuvopnum til að gamla skammstöfunin MAD, mutual assure destruction, sé enn í fullu gildi.

Að því leyti til hefur veruleiki Kalda stríðsins aldrei horfið, - veruleiki sem er ekki sæmandi dýrategund, sem telur sig skapaða í mynd Guðs almáttugs og verðskulda heitið homo sapiens. Vísa til bloggpistils á undan þessum.


mbl.is Þjóðverjar vilja ekki verða of háðir Rússum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Ragnarsson

USA virðast nú vera duglegir að æsa allt liðið upp.

Cheney er enginn bjáni, það er því greinilegt að þetta er gert eingöngu til að valda úlfúð á svæðinu.

Jón Ragnarsson, 29.8.2008 kl. 20:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband