Afneitun á fullu.

Ef málið væri ekki jafn grafalvarlegt og það þer væri broslegt að fylgjast með því hvernig Framsóknarflokkurinn og Samfylkingin reyna að sverja af sér ábyrgð á mistökum og axarsköftum í stjórnarfarinu undanfarin ár, - flokkar sem hafa keppst um hylli Sjálfstæðisflokksins eftir ballið á kosninganótt. 

Ekki þarf að fjölyrða um þátt Framsóknarflokksins í því að kynda þenslubálið allt frá 2002 í húsnæðiskerfinu og með stóriðju- og virkjanaframkvæmdum sem hvort tveggja var keyrt áfram í stundargróðabrjálæði af algeru tillitsleysi við hagsmuni komandi kynslóða.

Hlutur Samfylkingarinnar er ekki betri. Strax árið 2002 tók flokkurinn upp þá stefnu að sýna Sjálfstæðisflokknum fram á að hún væri "stjórntæk" með því að meirihluti þingmanna SF studdi Káralhnjúkavirkjun og leikið var tveimur skjöldum í stóriðjumálum.

Í héraði studdi Samfylkingarfólk álversframkvæmdir og eins miklar virkjanaframkvæmdir og hægt var að komast yfir. Ráðamenn átu ofan í sig loforð fyrir kosningar um að breyta fyrirkomulaginu við ákvarðanir sem gátu falið í sér afdrifaríkar og neikvæðar afleiðingar varðandi varðveisluna á mestu verðmætum landsins, sem felast í náttúru þess. 

Fagra Ísland var kokgleypt eftir kosningarnar og samstaðan við Sjálfstæðismenn var í raun algjör um eins öflugt áframhald stóriðjustefnunnar og mögulegt væri. 

Ofan á þetta bætist ábyrgð Samfylkingarinnar á hinum mikla hrunadansi í efnahagsmálum sem stiginn var með vaxandi þunga þar til allt hrundi.    


mbl.is Ekki benda á mig
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Það hefur verið ömurlegt að horfa upp á gjörði þessa fólks og eins að horfa upp á umkomuleysi þess nú. Það á ekki virðingu skilið.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 29.10.2008 kl. 20:25

2 Smámynd: Þorsteinn Briem

"Snúðu í austur, snúðu í vestur og bentu á þann sem þér þykir bestur!"

Þorsteinn Briem, 29.10.2008 kl. 21:33

3 Smámynd: Anton Þór Harðarson

Omar, hernig heldur thu ad astandid a islandi væri i dag, ef ad engin storida væri. Ekki hafa verid frettir af uppsøgnum i alverum, ætli einmitt alver og IJ verdi ekki traustustu og øruggustu vinnustadir landsins  a næstu arum.

Anton Þór Harðarson, 30.10.2008 kl. 08:32

4 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Í álverunum vinnur 0,7 % af vinnuafli landsmanna. Jafnvel þótt menn margfaldi það með fjórum til að finna út tengd störf (sem er hægt að gera í öllum atvinnugreinum) er þetta innan við 3% af vinnuaflinu.

Ef ekki hefði verið farið eins geyst í stóriðjunni og fjárfest bara lítið brot af því t. d. í ferðaþjónustunni, þá værum við betur búnir í henni með UNESCO-stimpil á Brúarjökli og einstæðum sköpunarverkum hans og vaxandi ferðamannastraum vegna rétt skráðs gengis krónunnar.

Ómar Ragnarsson, 30.10.2008 kl. 13:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband