Besti Bondinn?

Kannski var það nýjabrumið í fyrstu Bond-myndunum, sem olli því, að Sean Connery varð besti Bondinn í huganum þegar fleiri fóru að fást við að leika þennan litríka agent hennar hátignar.  Connery sýndi meiri breidd í persónuleikanum, allt frá sjarma og húmor, yfir í hæðni og hörku, en Roger Moore var ekki eins töff, heldur of sætur og settlegur. 

Og karlmennskulegt útlit Connerys gerði leikkonurnar, sem léku á móti honum, að mestu kynbombum allra Bondmynda. 

Sumir, sem léku Bond síðar, svo sem David Niven, áttu litið erindi í hlutverkin.  


mbl.is Hinn upprunalegi Bond níræður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Heiðarsson

Connery kemst tvímælalaust næst þeim Bond er Flemming lýsir í sínum bókum. Moore kom með meiri húmor inn í myndirnar og vissulega gaman að horfa á þær líka. Þegar Dalton var fenginn í hlutverkið fóru myndirnar að fjarlægjast sögur Flemmings og í dag er einungis nafn Bond sem er eftir.

Svo má auðvitað ekki gleyma þeim allra fyrsta, Barry Nelson. En hann var bara svona "Texas Bond".

Gunnar Heiðarsson, 26.8.2020 kl. 08:32

2 identicon

Reyndar má taka fram að í leiktíð Roger Moore var himinn og haf á milli myndanna og bóka Flemings.  Bókin "Moonraker" og myndin eiga ekkert sameiginlegt og hið sama má segja um bókina "The Spy Who Loved Me" og smásöguna "A View to a Kill".

Hilmar Bjarnason (IP-tala skráð) 26.8.2020 kl. 14:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband