Alltof losaralegt ástand víða í rafhlaupahjólamálum.

Á næstunni verður gerð könnun á vegum þessarar bloggsíðu á nýjun möguleikum í notkun vélknúinna léttra hjóla, og var fyrsta ferðin farin í dag.

Leiðin lá um vinsæla leið milli Egilshöll í Grafarvogshverfi og Borgartúns, sem liggur um Geirsnef og meðfram Suðurlandsbraut. 

Athygli á þessum slóðum vekja þau laustök, sem eru á notkun rafhlaupahjóla. 

Á einum stað er talsverð umferð hlaupahjólanna um bílastæði og gangstéttir og má ítrekað sjá smákrakka tvímenna á hlaupahjólunum án hlífðarhjálma, og oft farið allt of geyst. 

Þegar við það bætist að þessi þeysandi ungmenni virðast oft fara mjög ógætilega og að yfirleitt eru aldrei gefin hljóðmerki á þessum farartækjum, er auðvelt skilja hvers þá öldu slysa og óhappa, sem hefur verið  í rafhlaupanotkun. 


mbl.is Foreldrar verði að fylgjast með notkun Hopp-hjóla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband