Pele vissi hvað hann söng.

Þegar frægðarsólir Messis og Ronaldos voru komnar hæst á loft fyrir allmörgum árum, sagði hinn frægi Pele að kornungur og efnilegur knattspyrnumaður, Neymar að nafni, ætti eftir að slá þeim við.

Þetta þótti hraustlega mælt, en nú er að koma í ljós að enda þótt ljóst væri að Pele tæki áhættu með svo afdráttarlausum ummælum um alveg óreyndan mann, vissi hann hvað hann söng.

Hinn svimandi hái verðmiði, sem settur er á Neymar er að vísu að hluta til vegna ungs aldurs hans en einnig vegna verðleika hans, sem þóttu koma vel fram í frægum 6-5 sigri Barcelona, þar sem Neymar átti langstærstan þátt í mörkunum, en Messi hins vegar hampað.

Hugsanlega var það augnablikið sem skipti sköpum um að í hönd fór sú atburðarás sem hefur skilað Neymari þangað sem hann er nú kominn.  


mbl.is Neymar vegur þungt í bjórdósum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þessu var spáð fyrir meira en 20 árum.

Í sumar hefur verið hitabylgja yfir Suður-Evrópu sem íslenskur veðurfræðingur lýsti þannig í viðtali í sjónvarpi, að stafaði af því að æ oftar hin síðari ári teygi hinn heiti þurri loftmassi, sem er yfir hinum söndum og eyðimerkum þakta nyrsta hluta Afríku, sig yfir suðurhluta Evrópu og veldur steikjandi og þurrum hita. 

Munurinn á meðaltals veðfarinu við suðurströnd og norðurströnd Miðjarðarhafs er sláandi þegar veðurtölur eru skoðaðar. 

Þannig er meðalúrkoma í Túnisborg 3 millimetrar í júlí, 16 millimetrar í Nice syðst í Frakklandi, en 61 millimetri í Lyon, sem er aöeins rúmum 200 kílómetrum norðar en Nice. 

Í níu daga ferð til brúðkaups skammt frá Avignon hefir fjölskylda mín kynnst hinu nýja Afríkuveðri syðst í Frakklandi, 35 til 41 stigs hita og steikjandi sól. 

Skógareldar og tilheyrandi.DSCN8959

En þessu var þegar spáð fyrir um aldarfjórðungi og einnig hættunni á því að fyrir sunnan Ísland myndi verða til einn af þremur til fjórum kuldapollum á jörðinni, - sá við Ísland vegna þess að kalt og tært bræðsluvatn frá heimsskautasvæðinu og Grænlandsjökli muni vegna léttleika síns fljóta yfir nyrsta hluta hins salta og þunga Golfstraums, sem sem sökkvi því fyrr en ella á norðurleið sinni með þeim afleiðingum að sjórinn á mótum straumanna kólni. 

Nú eru menn að finna út hve margar tugþúsundir manna, allt að 150 þúsund manns á ári hverju, muni láta lífið í hinu nýja loftslagi síðar á þessari öld. 

DSCN8960

Íslenskir aðdáendur hækkandi meðalhita á jörðinni hafa dásamað og fullyrt hér á blogginu að hitnunin hafi geysilega góð áhrif á allt líf og gróður um alla jörðina. 

Hvernig vaxandi eyðimerkurloftslag í suðurhluta Evrópu, hitar og þurrkar, muni bæta líf og gróðurfar, er sérkennileg kenning og sömuleiðis hugsanlegur kuldapollur við Ísland og sívaxandi súrnun sjávar.

Og ekki þarf nema líta snöggt á gróðurkort af jörðinni til að sjá eyðimerkurbeltið sem er norðan við miðbaug um þvera Afríku og Asíu. DSCN8968

Á facebook síðu minni er mynd af Helgu konunnni minni þar sem hún stendur ein á torginu fyrir framan Óperuna í Brussel. Ein af ástæðunum var sú, að vegna hins gríðarlega munar á hita Afríkuloftsins í sunnanverðu Frakklandi og svalans, sem kemur yfir Atlantshafið frá Suður-Grænlandi, stóð hvass strekkingsvindur yfir torgið.

Á akstursleiðinni sunnan frá Avignon var upp undir 20 stiga hitafall og því meiri öfgar í hita, því meiri vindur og óveður þar sem loftmassarnir mætast.

Ég hyggst setja hér inn mynd frá þekktustu ferskvatnsuppsprettu Evrópu nálægt Lacose, þar sem brúðkaupið var haldið.

Þar böðuðu léttklæddir strákar sig í kaldri ánni og stungu sér í hana til að kæla sig. 

Á efri myndinni frá þessum stað stendur einn þessara manna uppi á vegg og býst til að stinga sér og kæla sig í 4 stiga heitu vatninu. 

Stynjandi gamalt fólk á þessum slóðum átti ekki kost á slíku, enda þessar miklu lindir fágæti.   

 

 

 


mbl.is Öfgar í veðri kosta þúsundir lífa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Spurt verður að leikslokum en ekki vopnaviðskiptum.

Undanúrslitin í 100 metra hlaupinu, sem nú eru að hefjast, eru fyrstu úrslitin á svona móti í hlaupasögu Usain Bolt á þessum áratug, þar sem möguleikar eru á því að hann tapi, að sögn Sigurbjarnar Arngrímssonar. Þó telur hann sigur Bolts líklegri en að hann tapi gullinu. 

En enda þótt Bolt yrði 0,02 sekúndum frá því að koma fyrstur í mark í undanúrslitunum var augljóst, að hann slakaði meira á á lokametrunum en nokkur annar í hlaupinu. 

Auðvitað getur Bolt tapað, en hann ætti að hafa nóg spil á hendi til að vinna, ef honum mistekst ekki óvænt.

P.S.

Leikslokin liggja fyrir, hlaupið er búið og tímamót urðu: Veldistíma Bolts er lokið. Vitað var að vísu að hann yrði örlítið seinni af blokkunum en skæðustu keppinautar hans, en hitt kom á óvart, hve hröðun hans fyrstu 30 metrana var lélegri en búast mátti við.

Á þessum metrum tapaði hann tveimur mönnum of langt fram úr sér til þess að geta unnið það upp, þótt skriður hans væri góður síðustu 30 metrana.

Niðurstaða: Aldurinn tekur yfirleitt snerpuna fyrr af íþróttamönnum heldur en úthaldið og aflið. Á sínum tíma tókst Linford Christie að viðhalda snerpu sinni til 35 ára aldurs, en það var þá og er enn, svo fágætt, að segja má að þetta afrek Christies hafi nálgast kraftaverk.

Meðalmaðurinn er á hátindi líkamlegrar og andlegrar getu í kringum 25 ára aldurinn en síðan er hnignunin persónubundin.

 

Sagt hefur verið að hinn vafasami aldur hnefaleikarsins sé 30 ára aldurinn. Höggfastir hnefaleikarar halda þeim eiginleika lengur en öðrum eiginleikum, en ef hraði er þeirra skæðasta vopn, fá þeir minnkun hans harkalega í andlitið, samanber Roy Jones jr.  


mbl.is Bolt af öryggi inn í úrslitin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vorum ekki hlutlausir í raun.

Þótt Íslendingar mótmæltu hernámi Breta í orði 10 maí 1940, gengum við í raun í lið með Bandamönnum með því að biðja Bandaríkjamenn formlega um hervernd sumarið 1941.

Þetta var rétt ákvörðun í ljósi stöðunnar og þeirra heppni að Bandaríkjamenn voru formlega hlutlaus þjóð.  

En frá endurkjöri Roosevelts veturinn áður höfðu Bandaríkjamennn gengið ansi langt í stuðningi sínum við Breta, svo sem með Láns- og leigkjarasamningum sem Churchill kallaði "Magna Carta okkar tíma." 

Í ágúst árið áður hafði verið tekið höfðinglega á móti Winston Churchill þegar hann staldraði við í Hvalfirði og í Reykjavík eftir fund með Roosevelt Bandaríkjaforseta við Nýfundnaland, þar sem þeir gerðu samkomulag um samstöðu þjóða sinna, án þess þó að Bandaríkjamenn hyrfu formlega frá hlutleysi. 

Því að BNA var að vísu hlutlaust ríki i orði á þeim tíma, en þegar Adolf Hitler flutti magnaða ræðu þegar Þjóðverjar sögðu Bandaríkjamönnum stríð á hendur 11. desember 1941 rakti hann ýmsar gjörðir Bandaríkjamanna fram að því sem að mati Hitlers jafngilti þátttöku Kananna í stríðinu og lýsti Hitler því sem dæmi um einstakan friðarvilja sinn að hann hefði stillt sig um að segja BNA stríð á hendur! 

Í bókinni "Emmy, stríðið og jökullinn" sem ég hef dundað við að rita með hléum hin síðari ár, er það eitt erfiðasta viðfangsefnið að meta, hvernig Íslendingar hefðu tekið á móti Adolf Hitler ef Þjóðverjar hefðu tekið landið af Bretum og Foringinn komið í stutta heimsókn. 

Roosevelt Bandaríkjaforseti hafði óformleg afskipti á bak við tjöldin af því þegar við lýstum yfir þeirri ætlun að stofna lýðveldi, og dróst lýðveldisstofnunin lítillega vegna þess hve það var mikils virði fyrir okkur að Bandamenn styddu fyrirætlanir okkar í einu og öllu. 

Eftir lok stríðsins dróst það í meira en ár að við gerðumst aðilar að Sameinuðu þjóðunum vegna þess að stofnaðilar Sþ voru þjóðir, sem höfðu sagt Öxulveldunum stríð á hendur, en það var grundvallarstefna okkar, líka við stofnun NATO, að við hefðu verið og yrðum áfram herlaus þjóð. 

 


mbl.is Jón hjálpaði Bretum burt frá Dunkirk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Alls staðar troðfullt. Fáránleg verðlagning.

Vorum að koma úr ferð til Suður-Frakklands til brúkaups sonar okkar. Leifsstöð var troðfull af fólki þegar við fórum utan og í Boeing 757-300 vél Icelandair til Brussel var hvert einasta sæti skipað.  

Fólkið ekið í rútum utan flugstöðvar sem er sprungin. Löng bið í þotunni eftir að komast í flugtak. 

Nákvæmlega sama ástand í þotu og flugstöð á leið heim. Bílastæðið stóra sneisafullt. 

Það kostaði næstum jafn mikið að láta bíl standa við Leifsstöð eins og að leigja sér lítinn bíl í jafn marga daga erlendis til að þeysa á honum rúmlega 2000 kílómetra. 

Við töku á kvikmynd Benedikts Erlingssonar á mótum Skólavörðustígs, Bergstaðastrætis og Hallveigarstígs var svo mikil umferð af bílum, gangandi fólki og hjólum um sex leytið í kvöld, að erfitt var um vik. 

Ef hækkun á virðisaukaskatti ætlar að sliga ferðaþjónustuna er fá merki að sjá um það enn sem komið er. 

En brjálæðisleg verðlagning á gistingu og hverju eina hér á landi stingur í augu eftir að hafa gist og borðað erlendis og augljós græðgin á því hér á landi á því sviði mun hefna sín.  


mbl.is Stefnir í 40-50% meiri umferð í ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvers vegna frekar að einkavæða RÚV en BBC?

Íslendingar og Bretar eiga það sameiginlegt að áratugum saman hefur afar hávær hópur fólks barist hatrammlega fyrir því að ríkisútvarp sé rekið í þessum löndum. 

En þrátt fyrir að í breska Íhaldsflokknum hafi jafnan verið hávær hópur sem hefur barist fyrir því að BBC yrði einkavætt og Íhaldsflokkurinn farið einn með völd samtals áratugum saman, hefur flokkurinn aldrei látið verða af því að breyta eignarhaldinu á ríkisútvarpinu breska.

Væri þó vissulega mun auðveldara í krafti hagkvæmni stærðarinnar í landi með 150 sinnum fleiri notendur en er hér á landi, að einkavæða allt útvarp og sjónvarp í Bretlandi.

Þegar það liggur hvað efrir annað fyrir að mikill meirihluti Íslendinga er andvígur einkavæðingu Ríkisútvarpsins og að það nýtur mests trausts allra fjölmiðla, gegnir þrákelkni þeirra furðu, sem endalaust hafa horn í síðu RÚV og þrá að það verði selt.  


mbl.is Meirihluti andvígur einkavæðingu RÚV
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stærsta askjan, líparít,- hrafntinnu,- háhitasvæðið.

Torfajökulssvæðið er öflugasta háhitasvæði landsins auk talsverðs vatnsafls. 

Askjan (caldera) er sú stærsta á landinu, mest af líparíti og hrafntinnu. 

Torfajökulssvæðið eitt og sér tekur Yellowstone, elsta og frægasta þjóðgarði fram.

Það eina sem Yellowstone hefur framyfir Torfajökulsssvæðið hvað varðar jarðfræðilegt gildi, eru goshverinn Gamli tryggur og hverasvæðið Mammuth Hot Springs.

Frægt hrafntinnuhraun í Yellowstone er ca 100 sinnum minna en Hrafntinnuhraunið íslenska. 

Í Yellowstone er enginn Ljótipollur, Jökulgil, Kýlingar, Frostastaðavatn, Rauðufossafjöll, Loðmundur, Torfajökull, Langisjór, Fögrufjöll, Veiðivötn, Eldgjá o.s.frv.

Á svæðinu milli Suðurjökla og Vatnajökuls eru öll þessi örnefni auk Lakagíga, og hvergi í heiminum er að sjá jafnmargar gígaraðir á þurrlendi, raunar er Ísland eini staðurinn með slíkum fyrirbærum.

Risagos eins og Torfajökull um landnám, Eldgjá um 930, Torfajökull um 1480 og Lakagígar 1783, verða með nokkurra alda millibil og því kominn tími á næsta.

Bárðarbunga er talin hafa stjórnað eldvirkni suður í Torfajökul og nú skjálfa bæði þessi fyrirbæri.  

Virkjanafíklar nota sumir þau rök að vegna þess að náttúran sé sífellt að breyta landinu sé sjálfsagt mál að menn geri það líka, - náttúran muni um síðir breyta mestu. 

Svona rök voru slegin út af borðinu í öðrum löndum fyrir hálfri öld en lifa enn góðu lífi hér. 

Um síðustu aldamót varð mikil eftirsókn eftir orku svæðisins í fjölmörgum virkjanatillögum um svipað leyti og verið var að keyra risavirkjanir við Kárahnjúka og á Hellisheiði í gegn.  

Annar eins stórhernaður á hendur náttúru Íslands hefur aldrei verið háður, enda mátti fjárvana náttúruverndarhreyfing sín litils gegn bandalagi ráðandi afla við svæsnustu alþjóðlegu stórfyrirtækin á þessu sviði, sem lofað var í betlibæklingi "lowest energie prizes", lægsta orkuverði heims með "sveiganlegu mati á umhverfisáhrifum."

Eftir að náttúrurverndarhreyfingin hafði verið króuð af í Kárahnjúkamálinu og lá eftir þann stóra slag nær örmagna tókst að smeygja Hellisheiðarvirkjun í gegn með blekkingum varðandi sjálfbærni og hreinleika þeirrar virkjunar og sviknum loforðum um að á meðan á Kárahnjúkavirkjun stæði yrði ekkert svipað aðhafst á Suðvesturlandi. 

Allt fram til ársins 2009 voru líkur á því að stóriðjusinnum tækist að sækja með tæki sín og tól inn á þetta einstæða svæði og virkja þar háhita og vatsnafl í stórum stíl. 

Það hefur að vísu slaknað á þeirri sókn í bili, en samt verður að halda vöku sinni. 

 


mbl.is Sá stærsti var 2,8 stig
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þegar margir töldu bílbeltin hættuleg.

Baráttan fyrir lögleiðingu bílbeltanna er einhver dapurlegasta barátta íslenskrar sögu hvað varðar það, hvernig þröngsýni og þrjóska fengu mikinn hljómgrunn og töfðu fyrir framförum. 

Ótrúlegustu rök voru notuð gegn beltunum, ekki síst þau að þau varu beinlínis hættuleg og dræpu fjölda fólks.

Svo langt gekk þetta að í fyrstu lögunum um þau var ákvæði sem lleyfði unddanþátur frá notkun þeirra, sem hvarflaði ekki að mönnum í neinu öðru landi að veita, en miðuðust við það sem kallað var "séríslaenskar aðstæður".

Meðal slíkra aðstæðna voru bratti og vatn!

Svo gróin var andúðin á beltunum hjá mörgum, að eitt sinn er bíll fór út af vegi norðan við Blönduós og kollsteyptist nokkrum sinnum niður í árgljúfur fullytri bílstjórinn, að það hefði bjargað lífi hans, að hann hefði ekki verið bundinn og því getað kastað sér af eigin afli til og frá inni í bílnum á leiðinni niður!

Því miður kostaði báráttan gegn rannsóknarniðurstöðum þúsundfalt fjölmennari þjóða Íslendinga nokkur mannslíf og fjölda alvarlegra meiðsla. 

Á ferðaferli mínum bjargaði bílbeltið mér á innan við 1km hraða á klist, þegar íísskör brast undan bílnum, svo að hann valt rólega á kaf  á hvolf í ískalda á. 

Beltið hélt eftri hluta líkamans frá vatni sem streymdi inn í bílinn og kom í vegr fhyrir að efsti hluti minn króknaði úr votum kulda. 

 

Á

 

ÞÞegar 


mbl.is Beltið bjargaði ökumanni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Torfkofarnir", timburhúsin og steinhúsin þurfa endurskoðun.

Lengi hefur verið talað niður til íslensku "torfkofanna" sem hýstu íslensku þjóðina myrkar, kaldar sultaraldir.

Þarna hafi verið saggi og óhollusta af verstu sort.  

Bæði timburhús síðari alda og steinhúsin hafa verið almennt talin margfalt betri hús. 

En með stórvaxandi myglu steinhúsa gætu farið að renna tvær grímur á menn. 

20-30 ára gömul hús hljóta að teljast nýbyggð, og því furða ef jafnvel þarf að rífa svo ný steinhús vegna óhollustu af völdum skemmda. 

Og samtímis þarf kannski að fara að endurmeta alhæfinguna um óhollustu torfbæjanna. 

Að minnsta kosti var það eftirminnileg fræðsla, sem ég og minn árgangur í M.R. fékk í heimsókn í torfbæ í Flóanum fyrir nokkrum árum. 

Í okkar veðrasama landi er brýn nauðsyn að rannsakað sé til fulls hverjir eru gallar og kostir mismunandi byggingaraðferða og byggingarefna. 

 


mbl.is Lúxus-torfhús risin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Oft er samkeppnisheimur samstarfsmanna grimmur.

Svonefnd goggunarröð, niðurröðun samstarfsmanna á ýmsum sviðum, eða jafnvel niðurröðun í dýraríkinu, getur oft tekið á sig sérkennilegar myndir. 

Um margt gildir það, að samvinna og góður samstarfsandi skiptir sköpum, jafnvel þótt æðsti yfirmaður eða eigandi sé aðeins einn. 

Dæmi um slíkt var Henry Ford yngri, sem tók við Ford-verksmiðjunum við dyr gjaldþrots og niðurlægingar í lok Seinni heimsstyrjaldarinnar. 

Í sumum atriðum, svo sem í fjöðrunarbúnaði, voru bílar Ford allt að 14 árum á eftir keppinautunum vegna þrjósku og þröngsýni hins aldraða Ford eldri, sem mátti muna sinn fífil fegri. 

Ford yngri lagði niður áætlun, sem taka myndi myndi meira en áratug til að hrinda í framkvæmd, þannig að þessi fyrrum risi í bílaheiminum með meira en helming allra seldra bíla í heiminum, yrði ekki áfram númer þrjú á eftir GM og Chrysler, heldur númer eitt. 

Ford fór fram úr Chrysler 1954 og 1957 og 1959 tókst Ford að framleiða fleiri bíla undir því merki en GM undir merkinu Chevrolet, en veik staða í sölu millistærðar- og stærri bíla, auk Edsel-ófaranna 1958-60 kom í veg fyrir að hrinda GM af sínum háa stalli. 

Ford var óragur við að ráða til sín bestu og dýrustu hæfileikamenn, sem hægt var að krækja í á hinum ýmsu sviðum rekstrarins og veitti þeim oft furðu mikið frjálsræði, ef honum sýndist slíkt nauðsynlegt til að ná árangri. 

En ef honum sýndist, að einhver þessara hæfileikamanna varð of áberandi eða of áhrifamikill í fyrirtækinu, var Ford jafn djarftækur við að reka þá menn, sem hugsanlega gætu ógnað veldi hans sjálfs. 

Menn, sem risu til mikilla verka og áhrifa á borð við Robert McNamara og Lee Iaqocca, - sá síðarnefndi aðal arktitektinn á bak við mestu sölu á einni bílgerð, Ford Mustang, meira en 700 þúsund stykki á aðeins níu mánuðum 1964, - urðu ekki langlífir hjá Ford og hvorugur naut sín í þeim hlutverkum, sem þeir fengu eftir burtförina frá Ford. 

Svipað getur átt við um samvinnuverkefni eins og að leika knattspyrnu. Að sjálfsögðu er það lið sterkast sem á besta leikmannahópinn, þar sem einhugur ríkir og allir vinna fyrir einn og einn fyrir alla. 

En um leið og spenna og úlfúð myndast milli þeirra sterkustu, er hætta á ferðum. 

Gerist slíkt, getur gerst hið sama og hjá sleðahundahópum, þar sem af og til kemur til uppgjörs á milli hundanna í "goggunarröðinni" sem kostar blóðug átök en leiðir furðu oft til sterkari liðsheildar framhaldinu í hundaeykinu, þegar búið er að endurraða í því. 


mbl.is Neymar að fara vegna Messi?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband