12.11.2017 | 11:29
Niðurlæging íslenskunnar og takmarkalaus enskudýrkun.
Að undanförnu hefur síbylja auglýsinga um "Happy Thanksgiving" verið keyrð í fjölmiðlum.
Eftir nokkra daga er svonefndur "Dagur íslenskunnar" einmitt um það leyti ársins sem Thanksgiving, Singles Day, Friday og Cyber Monday, allt bandarískir dagar, tröllríða hér öllu og kaffæra hinn íslenska dag í krafti fjöldans og umsvifanna, auk Singles Day, sem er kínverskur að uppruna en orðinn alþjóðlegur á skömmum tíma.
Af þessum dögum er Singles Day kannski hinn eini, sem réttlæta má, því að hann er tengdur nýju alþjóðlegu fyrirbæri á netinu, og veður því uppi í öllum heimshornum.
Og blaðakona mbl.is má eiga þakkir fyrir að voga sér að kalla Singles Day Dag einhleypra.
Því að engu er líkara en að ósýnileg ensk málfarslögga sé að taka hér öll völd.
Svo hratt hefur þetta gerst, að Cyber Monday er ekki enn eins þekktur og hinir, en það verður örugglega ekki lengi, sannið þið til, svo mikilvægt sem það er að við eltum Kanann og séum ekki eins og eitthvert meningarsnautt útnárafólk.
Betra hefði verið að segja "Dagur einhleypra heldur velli" heldur en að hann "sé kominn til að vera" ("is here to stay")
En Thanksgiving, Black Friday og Cyber Monday koma íslenskri menningu, sögu og aðstæðum nákvæmlega ekkert við, og hafa ekki frekar skírskotun til Íslendinga en að Þorláksmessa hafi skírskotun til Bandaríkjamanna.
Bandaríska þakkarhátíðin er frídagur og þess vegna er mikil verslun á eftir honum. Til þess að Svartur föstudagur eigi sér íslenska skírskotun þyrfti að gera Þakkarhátíðina að frídegi, en því verður hugsanlega kippti fljótlega í liðinn, sannið þið til.
Nú hefði maður haldið að hið gengdarlausa og einfeldningslega dekur okkar við allt, sem bandarískt og enskt er, hefði átt að duga.
Við getum ekki einu sinni drullast til að kalla þetta Þakkarhátíð eða Svartan föstudag, nei, "Happy Thanksgiving" og "Black Friday" skal það vera.
En, þetta er ekki allt. Eins og Björn Bjarnason hefur skrifað á bloggsíðu sína, nær enskudýrkunin nýjum hæðum eða réttara sagt nýjum lægðum í lágkúru í auglýsingum bíóhúsa á myndinni "Þór-Ragnarök". eins íslensku fyrirbæri og hugsast getur, skráð og mótað af Íslendingum.
Heitið Þór-Ragnarök virðist ekki þykja nógu fínt. "Thor-Ragnarok" skal það heita. Ekkert sveitalegt og hallærislegt íslenskt nafn, takk fyrir.
Kannski er stutt í það að mynd Friðriks Þórs Friðrikssonar, Börn náttúrunnar, sem var tilnefnd til Óskarsverðlauna, verði nefnd "The Childrens of the Nature" svo að það þyki nógu fínt.
Um það verður hann liklega ekki spurður ef til þess kemur, né heldur ég varðandi þáttinn um Gísla á Uppsölum, Samúel í Brautarholti og Sólveigu í Selárdal, sem kom á undan mynd Friðriks Þórs og bar heitið "Börn náttúrunnar."
Að maður skyldi ekki fatta það hvað þetta var lubbalegt heiti.
Aðeins eitt vantar til þess að fullkomna leiftursókn enskunnar til að gera alla tyllidaga í nóvember að enskum dögum; að breyta nafninu á Degi íslenskrar tungu og nefna hann "Day of Icelandic Language", nafnorðin að sjálfsögðu skrifuð með stórum stöfum að enskra sið.
Ég yrði ekki hissa þótt það færi að styttast í það.
![]() |
Dagur einhleypra kominn til að vera |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
11.11.2017 | 20:09
"Eitrað peð" áfram.
Sterkar og afgerandi persónur, sem gustar að, hafa löngum getað dregið að sér fylgi í stjórnmálum og gert jafnvel ótrúlega hluti á mettíma, svo sem að stofna stjórnmálaflokka sem sópar að.
Nefna má dæmi eins og Albert Guðmundsson og Borgaraflokk hans, Vilmund Gylfason og Bandalag jafnaðarmanna og Jóhönnu Sigurðardóttur og Þjóðvaka.
Það kom mörgum á óvart þegar liðsfólk Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar stofnaði Miðflokkinn á mettíma fyrir síðustu kosningar og kræktu í 10 prósenta fylgi.
En rétt eins og að Framsóknarflokkurinn með Sigmund Davíð innaborðs kom aldrei til umræðu í stjórnarmyndunarviðræðum eftir kosningarnar í fyrra, hefur Miðflokkurinn verið í svipaðri stöðu nú.
Ástæðan er einföld og að ýmsu leyti grátleg, staðföst ítrekun SDG á því að á Tortóla sé virt og viðurkennd fjármálastarfsemi og að það hafi verið fullkomlega eðlilegt að hann leyndi því, eftir að hafa byrjað á að tala um Tortólu sem skattaskjól í heimsfrægu viðtali, að hann hefði í raun verið beggja vegna borðsins í viðskiptum og samningum íslenska ríkisins, sem hann var í forsæti fyrir, við "hrægamma", "vogunarsjóði" og skylda aðila.
Af þessum sökum er hver sá flokkur, sem hann er í, eins konar "eitrað peð" í stjórnarmyndunarviðræðum.
Hér að ofan var notað orðið "grátlegt" um þetta. Því að það er bagalegt þegar jafn öflugur stjórnmálamaður og Sigmundur ´Davíð vissulega er, lætur jafn einfalda en afdrifaríka afneitun sína loka dyrum fyrir sér.
![]() |
Píratar útiloka Miðflokkinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (19)
11.11.2017 | 10:42
Steingrímur varð forsætisráðherra 1983.
Þegar lítill hluti þingflokks Sjálfstæðisflokksins gekk til liðs við höfuðandstæðingana Alþýðubandalag og Framsóknarflokk 1980 varð djúpstæður klofningur í þingflokknum.
Minnugur viðbragða fimm þingmanna flokksins gegn mynduna ríkisstjórnar Ólafs Thors með "kommúnista" og krata innanborð 1944 ákvað Geir Hallgrímsson að reka ekki "svikarana" úr flokknum 1980, heldur horfa fram á við til framtíðar þegar kosningar yrðu 1983.
Fyrir bragðið gengu Sjálfstæðismenn sameinaðir og samtaka til þeirra kosninga og sömdu eftir þær við stærsta andstæðing sinn, Framsókn um myndun ríkisstjórnar með tryggan meirihluta.
Í þeirri stjórn yrðu meðal annarra Steingrímur Hermannsson, sem hafði verið ráðherra í "vinstri stjórn" Gunnars Thoroddsens.
Þeir tók líka þá taktísku afstöðu að gefa Framsóknarmönnum kost á að fá forsætisráðuneytið gegn því að Sjallar fengju fleiri ráðherra í skiptunum.
Stærsti kosturinn við það var sá, að með því var mun tryggara að þingflokkur Framsóknarmanna, sem var mun minni en þingflokkur Sjalla, yrði leiðitamari en ella við þær róttæku aðgerðir gegn 100% plús verðbólgu, sem þurfti að höggva niður með harkalegum og óvinsælum aðgerðum.
Í þeirri einu stjórn sem Vg hefur setið í, varð urgur í ýmsum þingmönnum flokksins yfir því sem þeim fannst vera of mikil áhrif Samfylkingar í stjórninni, til dæmis vegna þess að Vg hefði orðið við kröfu Samfylkingar um aðildarumsókn að ESB.
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra kallaði hina "óþægu" þingmenn Vg "villikettina" og varð það síst til að bæta andrúmsloftið.
Hjá báðum flokkum, Sjálfstæðisflokki og Vinstri grænum er það ákveðinn hemill við stjórnarmyndun að þessir flokkar eru á sitt hvorum jaðrinum í íslenskum stjórnmálum.
Í stjórn Sjalla, sósíalista og krata 1944 sem var mynduð "yfir allt litrófið" vinstri/hægri studdu fimm þingmenn Sjalla ekki stjórnina og líklegt er að fleiri Sjallaþingmenn hefðu gengið úr skaftinu ef Ólafur Thors formaður þeirra hefði ekki verið forsætisráðherra.
En það hjálpaði til við þessa óvenjulegu sátt anstæðustu afla íslenskra stjórnmála að Sovétmenn voru þá í nánu bandalagi við Bandaríkjamenn og Breta og að gífurlegar gjaldeyrisinnistæður Íslendinga erlendis auk mikillar efnahagslegrar uppsveiflu gerðu það að verkum að hægt var nota þessa miklu fjármuni til að efla bæði stórútgerðir einkaframtaksins, almenna neyslu og miklar velferðarbætur, meðal annars í "besta almannatryggingarkerfi heims" á þeim tíma.
Stjórnarmyndun nú með Sjöllum, Framsókn og Vinstri grænum svipar mjög til hinnar óvenjulegu myndunar Nýsköpunarstjórnarinnar 1944. Enn uppsveifla i efnahagslífinu, Kalda stríðið úr sögunni og ESB ekki á dagskrá að sinni að minnsta kosti.
Á jöðrum Sjálfstæðisflokksins og Vinstri grænna er samt jarðvegur fyrir "villiketti."
Í ljósi þess getur það verið taktísk nauðsyn að formaður Vg verði forsætisráðherra, af því að sá þingflokkur er minni en hjá Sjöllunum og því hættara við því að hann teldi á sig hallað í komandi samstarfi undir forystu stóra flokksins á hinum jaðrinum.
Ef þetta gengur ekki, þá yrði lausnin hugsanlega sú að Sigurður Ingi yrði forsætisráðherra í krafti ágætrar reynslu af honum í því embætti í fyrra.
![]() |
Sætta sig við Katrínu í forsæti |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
11.11.2017 | 00:19
Seinþreyttir til stórræða en Evrópuher í pípunum.
Lærdómur Evrópuþjóða af Seinni heimsstyrjöldinni var sá að forðast það að slíkt gæti gerst aftur.
Þegar Bandaríkin reyndust bera ægishjálm fjárhagslega og hernaðarlega yfir hinar veiku Evrópuþjóðir með allt sitt stríðstjón, kom það sér vel fyrir báða aðila að Kanarnir nýttu mátt sinn til að standa fyrir því að verjast hugsanlegri frekari útþenslu kommúnismans.
Kommúnistar voru öflugir bæði í Frakklandi og á Ítalíu og háðu borgarastyrjöld í Grikklandi.
En Stalín hélt grundvallarsamkomulagið við Churchill og lyfti ekki litla fingri til að skipta sér af kommunum í Grikklandi.
Raunar þótti hann hafa verið heldur frekur til valda í austantjaldsríkjunum, einkum í Tékkóslóvakíu, en með því að halda að sér höndum í Grikklandi ávann hann sér það, að Vesturveldin lyftu ekki heldur litla fingri þegar Sovétherinn óð inn í Ungverjaland 1956 og inn í Tékkóslóvakíu 1968.
En síðan hefur margt breyst, Kalda stríðinu löngu lokið og ný sviðsmynd blasir við í Evrópu.
Ýmsum óar við því að fyrrum stríðsþjóðir, Þjóðverjar og Frakkar, vígbúist, einkum að Þjóðverjar geri það.
En það verður óhjákvæmilegt eftir að Donald Trump hefur reynt að þvinga þær til þess til þess að létta á Bandaríkjamönnum.
Einvers konar Evrópuher er því á leiðinni ef svo heldur fram sem horfir.
Hvaða áhrif það hefur á stöðu Íslands veltur mjög á afstöðu Bandaríkjamanna.
En meðan varnarsamningurinn frá 1951 er í gildi hljótum við að teljast á áhrifasvæði Kananna.
![]() |
Stefna að auknu varnarsamstarfi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
10.11.2017 | 19:05
Enginn kannaðist við Chernobyl fyrst. Við könnumst ekki við rányrkju.
Þegar mesta kjarnorkuslys allra tíma varð í Chernobyl í Úkraínu á sínum tíma voru fyrstu vísbendingarnar þær að geislavirkt loft breiddist út yfir norðanverðri Evrópu allt til Norður-Noregs.
Í fyrstu vildi enginn kannast við að hefði farið úrskeiðis en smám saman kom hinn ógnvænlegi sannleikur í ljós.
Enn í dag er stórt svæði í Úkraínu óbyggilegt vegna þessa hroðalega slyss.
En Sovétstjórnin, sem þá réð ríkjum í Úkraínu hékk á þöggun málsins eins og hundur á roði.
Slysið sýndi hve gríðarlega sterk tilhneiging til afneitunar getur verið hjá heilum þjóðum og jafnvel stórveldum.
Þegar Sameinuðu gerðu skýrslu um ástand umhverfismála í löndum heims upp úr síðustu aldamótum, varð Ísland meðal efstu þjóða.
Í krafti upplýsingalaga fékk ég skýrsluna afhenta og þá kom í ljós að undir atriðinu "ástand jarðvegs" skilaði Ísland auðu, stöfunum N/A, sem þýða að engar upplýsingar sé að finna.
Samt hafði Ólafur Arnalds orðið eini Íslendingurinn til að hljóta umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs nokkrum árum fyrr fyrir nákvæmlega það sem lýst var eftir, rannsókn á ástandi jarðvegs á Íslandi.
Í skýrslunni vorum við í þokkalegum félagsskap tveggja Evrópuþjóða í þessu efni: Hverjar haldið þið að þær hafi verið? Jú, Úkraína og önnur fyrrum austantjaldþjóð, álíka illa sett eftir umhverfissóðaskap kommúnismans.
Nú er í nafni íslenskra bænda og íslensku þjóðarinnar birtar ljósmyndir af sauðfé á öroka uppblásnu landi og fullyrðt að lambakjötið og íslenskur sauðfjárbúskapur byggist á sjálfbærri nýtingu lands.
Þó liggur fyrir fyrrnefnd verðlauna rannsókn Ólafs Arnalds og reynsla og starf Landgræðslunnar í meira en öld, en þetta tvennt hefur sýnt á óyggjandi hátt að á stórum svæðum á hinu eldvirka svæði Íslands á sér stað beit á óbeitarhæfu landi.
Þegar forsvarsmenn þessarar ósvífnu auglýsingar eru inntir nánar eftir þessu, segja þeir án þess að depla auga, að það skorti rannsóknir!
Forherðingin og afneitunin er alger. Fyrir nokkrum dögum var fjallað hér á síðunni um svipaða afneitun gagnvart orkunýtingu á Íslandi. 100% eru endurnýjanleg! Þó liggur fyrir að minnsta kosti 20% núverandi orkuframleiðslu, þ.e. a.m.k tvær stórar gufuaflsvirkjanir, er sannanlega ósjálfbær, rányrkja öðru nafni.
![]() |
Líklega kjarnorkuslys sem enginn kannast við |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
10.11.2017 | 10:57
Kröflueldar skópu tímamót í skilningi á eldgosum. Sjónblekkingar.
Í hátt á annan tug umbrotahrina og samtals níu eldgosum í Kröflueldum 1975-1984 varð til tímamótaþekking jarðvísindamanna á hegðun og eðli íslenskra eldfjalla.
Vegna bættrar og aukinnar mælingatækni var hægt að fylgjast með risi og sigi svæðisins og meira að segja staðsetja lárétt kvikuhlaup neðanjarðar í fyrsta sinn í svona miklum mæli.
Eitt af mælitækjunum var hallamælir í nýbyggðu stöðvarhúsi Kröfluvirkjunar, og í ljós kom, að allar umbrotahrinurnar enduðu með kvikuhlaupi, níu sinnum upp á yfirborðið, en í hin skiptin lárétt, oftast til suðurs.
Annað merkilegt kom í ljós: Eftir hvert kvikuhlaup með tilheyrandi landlækkun á mælasvæðinu, byrjaði land að rísa að nýju, en þegar það var komið í sömu hæð og það hafði verið við síðustu umbrot, gerðist yfirleitt ekkert strax, heldur þurfti land að rísa heldur hærra en fyrr, áður en kvikan hljóp til, ýmist upp eða til annarrar hvorrar áttar eftir sprungustefnunni SSV-NNA.
Hekla virðist vera í svipuðum fasa nú. Það eru liðin nokkur ár síðan fjallið hafði þanist jafn mikið út og fyrir síðasta gos, en samt gerist ekkert ennþá.
Í Kröflueldum reyndist erfitt að spá fyrir um það hve lengi viðbótarþenslan myndi standa þar til allt færi af stað.
Sama á við um Heklu nú. Hvað Öræfajökul snertir hafa menn ekkert viðmið frá fyrri gosum þegar engin mælitækni var til.
Að lokum má geta þess, að á mynd RAX af Holuhrauni sést flugvél, sem er að því er virðist ofan í gígnum.
Þetta er hins vegar sjónblekking, því að ef svo væri, væri flugvélin að brenna upp til agna og ég ekki að skrifa þennan bloggpistil.
Í gegnum tíðina höfum við Ragnar Axelsson oft farið í myndatökuferðir saman og haft samvinnu um að reyna að taka myndir, þar sem hægt væri að átta sig á stærðarhlutföllum.
A þessari mynd er RAX í um það bil 2500 feta hæð yfir hinum ílanga gíg, en flugvélin fyrir neðan er í um 1000 feta hæð yfir gígnum og sýnist því bæði vera meira en tvöfalt stærri en hún raunverulega er og sýnist líka vera beint yfir gígnum, sem er einnig sjónblekking.
Þar að auki sést af myndinni að stífur vindur stendur í átt að gígnum, þannig að hitann frá glóandi hrauninu leggur í átt frá flugvélinni.
Til samanburðar ætla ég að leita uppi loftmynd, sem tekin var af flugvélinni TF-ULF undir stjórn Jóns Karls Snorrasonar yfir hinu glóandi Holuhrauni.
Flugvélin sýnist vera eins og felumynd inni í hraunstraumnum en með sjónarhorninu í flugi beggja vélanna, TF-ROS, sem myndin er tekin úr, og TF-ULF, sem myndin er tekin af, verður til mögnuð sjónblekking.
Eins og á mynd RAX leggur vindinn frá TF-ULF, og vélin er í raun ekki yfir hraunstraumnum, - annars hafði vélin brunnið í hitanum sem leggur upp frá hrauninu.
Það leggur mistur upp frá hrauninu þannig að myndin verður hjúpuð seiðandi dulúð.
![]() |
Þekktar eldstöðvar að þenjast út |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.11.2017 | 00:07
Samningaleiðin sú eina skynsamlega á endanum.
Yfir átökunum í Katalóníu á Spáni grúfir vofa borgarastyrjaldarinnar 1936-1939, einræði Francos áratugina á eftir og hið gríðarlega mannfall og hörmungar sem hvort tveggja skildi eftir sig.
Það flækir deiluna að íbúar Katalóníu skiptast í tvennt um sjálfstæðið, líkt og Færeyingar gerðu eftir lok Heimsstyrjaldarinnar síðari, sem er ólíkt því sem var til dæmis hjá Íslendingum.
Þótt báðir deiluaðilar stundi störukeppni og það að fara eins langt í aðgerðum og þeir telja sig þurfa til að halda stöðu sinni, er það augljóslega hagur allra að reynt verði að finna lausn með samningum.
Allt annað með stórfelldum afleiðingum ætti raunar ekki að vera í boði.
![]() |
Íhuga að breyta stjórnarskrá Spánar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
9.11.2017 | 18:23
Afbrigði af "GAGA" ("MAD")?
Sagt hefur verið að Bandaríkin og Rússland búi yfir kjarnorkuvopnum, sem gætu fræðilega drepið íbúa hvors ríkis fimm sinnum.
Og að grundvöllur þess að eiga þessi vopn sé sá, að hvor aðili um sig geri það ljóst að tryggt sé að hann sé reiðubúinn til að beita öllum þessum vopnum. Niðurstaða: Kenningin MAD (Mutual Assured Destruction) eða GAGA (Gagnkvæm Altryggð Gereyðing Allra) sem gilti mestallt Kalda stríðið, eftir að kjarnorkuheraflinn hafði þanist út beggja vegna.
Varðandi deilu Norður-Kóreu og Bandaríkjanna er það hins vegar aðeins annar aðilinn, Bandaríkin, sem hefur getu til að drepa alla íbúa landsins fimm sinnum eða jafnvel oftar!
Enn sem komið er langt frá því að Norður-Kórea hafi getu til neins sambærilegs gagnvart Bandaríkjunum, en gæti hins vegar fljótlega farið langt með að hóta nágrönnum sínum hræðilegum árásum.
Í áratuga sögu kjarnorkuvopna hefur verið gerður greinarmunur á fyrirvaralausri fyribyggjandi árás og gagnárás.
Yfirleitt velja ráðamenn kjarnorkuvelda fyrrefnda afbrigðið.
Það er þess vegna áhyggjuefni þegar Trump tilgreinir ekkert slíkt, heldur virðist gefa í skyn að fyrirvaralaus fyrirbyggjandi gereyðingarárás komi til greina.
Með því eykur hann líkur á því að Norður-Kóreumenn kjósi sjálfir í örvæntingu að gera fyrirvaralausa fyrirbyggjandi árás.
Norður-Kóreumenn hafa sjálfir verið með stórkarlalegar yfirlýsingar sem gætu valdið því að Trump ákvæði að gera út um málin í eitt skipti fyrir öll með fyrirvararlausri stórárás.
![]() |
Hægt að réttlæta beitingu kjarnavopna? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
9.11.2017 | 17:58
"Gott og illt eru ekki til, aðeins völd og veiklaðir"?
Nú er blaðafólk að tína til ýmis ummæli Donalds Trumps eftir að hann var kjörinn forseti og er þar um auðugan garð að gresja eins og vænta má.
Ekki var um síður auðugan garð að gresja af ummælum fyrir kjörið eins og það þegar hann ráðlagði upprennandi bísnissmönnum að eiga litla bók og skrá í hana nöfn þeirra sem hefðu þvælst fyrir þeim til þess að geta sett þar inn upplýsingar um höggstaði á þeim til þess að hefna sín á þeim.
Því miður getur þýðingin yfir á íslensku á einum tilvitnðum ummælum Trumps, sem ég heyrði í gær. verið ónákvæm, en orð hans eiga að hafa fjallað um það að gott og illt væru ekki til, aðeins völd andspænis veikluðum.
En af nógu er að að taka og kannski best að velta fyrir sér einu og einu í senn.
Að gott og illt séu ekki til er kannski annað orðalag yfir siðblindu?
![]() |
Stormasamt fyrsta ár forsetans |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.11.2017 | 00:42
Tvö yngstu gljúfrin í aldarbyrjun, en öðru þegar tortímt.
Rétt er að ítreka það sem hefur komið fram áður á þessari síðu, að yngstu gljúfur Evrópu voru í byrjun þessarar aldar tvö en ekki eitt. Bæði voru einkum mikils virði og upplifun fyrir þá sem sáu þau, að það, að horfa á Hverfisfljót og Jökulsá á Brú hamast við að sverfa þau og skapa eins og afkastamiklir listamenn.
Fyrir tæpri öld var ekkert gljúfur þar sem áin rann á innan við öld síðar um svonefnda Stapa um sérstaklega litfagurt gljúfur og einnig um Rauðuflúð og Rauðagólf, sem drógu heiti sín af litnum.
Það var svonefnt flikruberg sem gaf gljúfrinu, klettunum, flúðinni og hinu halland steingólfi litadýrð sína.
En 2006 var þessi stórbrotna sköpun stöðvuð og þetta gljúfur mun aldrei að eilífu birtast á ný, því að verið er í óða önn að sökkva því í þann aur, sem Jökla er nú að fylla Hjalladal með, 25 kílómetra langan og 180 metra djúpan.
Þetta einstæða fyrirbrigði var ekki metið krónu virði þegar því var tortímt.
Heldur ekki mesta hjallamyndun landsins eða 40 ferkílómetrar af svo vel grónu landi, að þar var beitt sauðfé í meira en 600 metra hæð yfir sjávarmáli og hreindýrin áttu þar griðland þegar mest svarf að þeim seint á 19. öld. Efst til vinstri á myndinni sést glytta í svonefndan Háls, samfellda margra metra þykka gróðurþekjuna sem Hálslón dregur nafn af, en undir honum var hjallaröð með grænum rennisléttum grundum og heitri lind.
Þetta gljúfur er liklegra enn yngra en gljúfrið í Hverfisfljóti, en það skiptir ekki höfuðmáli, því að hið skaftfellska gljúfur er bæði jarðfræðilega og sögulega merkilegt.
Í Skaftáreldum voru bæði Skaftárgljúfur og fyrrum gljúfur í Hverfisfljóti fyllt af nýju hrauni.
Skaftá hefur ekki tekist enn að endurvinna sitt gljúfur en Hverfisfljót er á fullu við það.
Við það að taka vatnið úr gljúfri Hverfisfljóts verður hinn stórvirki listamaður náttúrunnar stöðvaður við listsköpun sína, en að vísu mun eitthvað seytla um það en auðvitað miklu minna virði eftir að listamaðurinn hefur verið fjarlægður.
P.S. Vegna sérlegra fáfræðiskrifa leynihöfundarins Hábeins í athugasemd bæti ég hér við loftmynd af lónstæði Hálslóns eins og það lítur út á heitustu og björtustu dögum snemmsumars, þegar hlýr hnjúkaþeir blæs úr suðri yfir þetta svæði.
![]() |
Skiptar skoðanir á virkjun Hverfisfljóts |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 10.11.2017 kl. 00:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)