Raddir hrópenda í eyðimörk þingsalar.

"Það var enginn að fylgjast með þegar ég flutti ræðuna mína, sem ég var búin að undirbúa í dágóðan tíma," segir Silja Dögg Gunnarsdóttir þingmaður.  

Fyrir nokkrum dögum kom einn ráðherranna af fjöllum þegar hann átti að svara fyrirspurn, sem þingmaður hafði beint til hans úr ræðustóli. Ráðherrann hafði þó verið í sæti sínu en hafði sökkt sér svo mjög niður í verkefni á snjallsímanum að það virtist vera ígildi þess að vera með eyrnatappa. 

Frétt af þessu á vefmiðli fylgdi, að iðulega virtust ráðherrar hegða sér svona. 

Venjulegt fólk, sem sér beina útsendingu frá Alþingi, á erfitt með að skilja hvers vegna raddir hrópenda hljóma iðulega í eyðimörk þingsalarins eða að viðstöddum þingmönnum, sem telja má á fingrum annarrar handar. 

Það hlýtur að vera eitthvað að. Eru þingfundir of margir og of langir? Væri betra að hafa þá færri og þá með fleiri viðstöddum? 

Í starfi stjórnlagaráðs voru haldnir fundir ráðsins og sýndir í beinni útsendingu, sem samsvöruðu fundum Alþingis, og var þess vandlega gætt að hafa skipulagið þannig, að allir fulltrúar væru á þeim fundum, þar sem ráðið allt væri í salnum. 

Starf ráðsins stóð í þrjá mánuði og það var viðburður ef ekki var nokkurn veginn full mæting. 

Síðuhafi fékk frí einn dag frá fundi vegna þess að ef hann flaug ekki lítilli vél á svæði kringum Keflavíkur- og Reykjavíkurflugvöll með sérstök íslensk mælitæki og mælingamenn, sem mældu öskumagn í lófti, hefði báðum flugvöllunum verið lokað vegna útreikninga og spár stórrar tölvu í London varðandi flug yfir Evrópu og Norður-Atlantshafi! 

Ef ekki hefði gosið í Grímsvötnum, hefði síðuhafi aldrei þurft að fara fram á leyfi til að vera fjarverandi í öskumælingaflugi.   


mbl.is „Það var bömmer“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Eitt það versta" en hatrið sigraði samt. Bónus: Eitt tækifæri enn.

Það er í stíl við umdeilt ástandið,, sem er undiraldan í lagi Hatara að í blaðinu Aftenposten og víðar er laginu hallmælt hressilega á sama tíma og það verður fyrsta íslenska lagið í fimm ár sem kemst í úrslit. 

Það þýðir að Hatarar fá þann bónus, sem síðuhafi minntist á í samtali við Loga Bergmann í dag, að standa enn einu sinni á sviðinu á laugardaginn og fá eitt auka tækifæri til að gera eitthvað spennandi. 

Til hamingju, Ísland. Til hamingju, Hatarar. 


mbl.is Íslenska lagið eitt það versta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Leitun að svartari bletti um þessar mundir.

Í vetur mátti sjá og heyra í fjölmiðlum ljóta lýsingu á svo umfangsmikilli spillingu í kringum fjármögnun liðs Manchester City, að mann sundlaði við að kynnast öðru eins. 

Óvenju stór svartur blettur á íþróttum nútímans. 

Ekki var laust við grun um að spillingin væri ekki öll falin í hegðun ráðamanna félagsins við að brjóta af mikilli óskammfeilni reglur um fjármögnun íþróttafélaga og íþróttafólks, heldur einnig undrun á því hve langt væri hægt að komast í því efni og sleppa með það.

Þegar litið er á stigatöfluna í lok keppninnar í úrvalsdeild ensku knattspyrnunnar sést hvað býr að baki ummælum talsmanns Liverpool þess efnis að þar á bæ geti menn borið höfuðið hærra en um margra ára skeið. 

Liðið hefði orðið Englandsmeistari með óvenjulegum glæsibrag langt fyrir ofan aðra, ef ekki hefði komið til þetta eina lið, sem fékk einu stigi meira. 

Að baki ummælunum býr ekki aðeins verðskuldað stolt, heldur einnig efinn um það hve vel að titlinum Manchesterliðið sé komið. 


mbl.is Fær City bann í Evrópukeppni?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sérstaða Seltjarnarness.

Af þeim sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu, sem hafa bein áhrif varðandi samstarfið um borgarlínu, hefur Seltjarnarnes sérstöðu að því leyti, að það er eina sveitarfélagið sem er hrein endastöð línunnar. 

Mosfellsbær og Hafnarfjörður eru það ekki í raun, vegna þess að tæknilega er hugsanlegt að framlengja línuna út frá höfuðborgarsvæðinu í gegnum þau sveitarfélög. 

Vitanlega er æskilegast að samstaða sé með öllum sveitarfélögunum um þetta mál og að allir leggi í púkkið ef eða þegar farið verður af stað í verkefninu, en þessi tæknilega sérstaða Seltjarnarness er óneitanlega fyrir hendi. 


mbl.is Taka afstöðu til borgarlínu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Allt frá ánægju yfir í aulahroll.

Síðuhafi hefur undanfarnar vikur gjóað augunum á nokkrar af þeim Bond-myndum, sem sýndar hafa verið í Sjónvarpi Símans. 

Ástæðurnar hafa verið mismunandi. Stundum forvitni vegna myndar sem maður sá ekki á sínum tíma. Oftast eins konar nostalgía í heimabíói með konunni í bland við endurmat á tækni og efnistökum í hálfrar aldar rás þessara mynda. 

Gullauga, myndin, sem var sýnd í nótt, kallaði fram ýmis viðbrögð, allt frá ánægju yfir í aulahroll. 

Gaman var að sjá að nýju eftir öll þessi ár langa eltingarleiksatriðið í Sankti Pétursborg, þar sem fram fór mesta fjöldaslátrun sögunnar á Lada- fólksbílum í skriðdrekaatriðinu. 

Allt útfært þannig, að maður hreifst með og samþykkti að þetta gæti gerst. 

Í upphafi atriðsins er hálfrar aldar gamall úkrainskur smábíll af gerðinni ZAZ (Zaphorohetz) settur í gang með því að berja sleggju í afturendann á honum. 

Þarna myndi ef til vill aulahrollur fara um einhverja áhorfendur, af því að þetta sé of fjarstæðukennt. 

En það er það ekki. Þessi bíll er nefnilega í fúlli alvöru í bílaritum talinn lélegast hannaði bíll bílasögunnar, og því bætt við að það sé meira að segja vafasamt að hann hafi yfirleitt verið hannaður!

Einn svona bíll var fluttur inn til Íslands og reyndist einhver skammlífasti bíll, sem sést hefur hér á landi. 

Síðuhafi naut þess vegna þessa atriðis í botn. 

Á hinn bóginn greip hann hinn megnasti aulahrollur þegar Bond var látinn steypa sér í frjálsu falli lóðrétt til að draga uppi og komast í borð í eins hreyfils skrúfuþotu af gerðinni Pilatus Turbo Porter sem féll lóðrétt niður á undan ofurmenninu. 

Atriðið var algerlega fráleitt því að loftflæðislega eða flugeðlisfræðilega er margt útilokað, sem sýnt var í þessu atriði. 

Flugvélin er svon miklu straumlínulagaðri og þyngri en maður, að það var gersamlega fráleitt að hann gæti dregið hana uppi í lóðréttu falli. 

Í öðru lagi tekur flugvél miklu skemmri tíma að steypast svona lóðrétt niður, alveg niður undir jörð, en það tók i myndinni. 

Af þessu má draga ályktun: Í velheppnuðum hasar atriðum er hægt að selja hinar ótrúlegustu uppákomur, svo að unun er á að horfa. 

Í öðrum slíkum atriðum er ruglið svo svakalega áberandi að atriðin verða beinlinis leiðinleg og pirrandi. 

Verst er þegar slík atriði verða of langdregin eins og raunin varð í annarri Bondmynd, sem tekin var við Jökulsarlón, en kannski hafa þau frekar pirrað Íslendinga en útlendinga, af því að við þekkjum betur til aðstæðna en flestir aðrir. 

 

talinn lélegasti bíll


mbl.is Bond-tökur hafnar í Noregi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Það var afleitt að við skyldum stífla skurðinn..."

Nú kemur í ljós að þessi hending úr laginu "Halló, mamma" frá 1966 hefur verið meira en fimmtíu árum á undan sinni samtíð, ef marka má ummæli landgræðslustjóra um verkefnin í landgræðslunni, sem muni taka heila öld. 

Ofangreindur lagatexti var hluti af því þegar ölvaður unglingur undir stýri á leið heim af sveitaballi er að reyna að sefa foreldra sína eftir að hafa valdið fjöldaárekstri og hvolft bílnum. Samhengið var svona: 

 

Hvað, voru þeir fleiri? Ég straujaði fjóra

og flatti Bjúkkann hans Óla stóra. 

Það skemmdist ekkert; - bara önnur hurðin; - 

en það var afleitt að ég skyldi stífla skurðinn." 

 

Nú, meira en hálfri öld síðar, leggur Landgræðslustjóri það sérstaklega til að setja í forgang að moka ofan í skurði, sem liggja meðfram vegum, og auka slysahættu. 

Var ekki seinna vænna að drífa í því að ekki sé nú talað um hve það hefði átt að samþykkja nú landgræðslulög fyrir mörgum áratugum. 

Síðuhafi hefur ekki farið yfir nýju lögin í heild, en það verður til lítils að auka sjálfbærni á sviði beitar, ef ekki verður hægt að beita viðurlögum að gagni. 

Það hefur ekki verið hægt fram að þessu, en slíkt ekki síður nauðsynlegt á þessu sviði en til dæmis í fiskveiðum. 

Er mál að þessu máttleysi linni. 

 


mbl.is Verkefni í landgræðslu taka eina öld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Minnir að vissu leyti á Max-málið.

Tveir brunar í sama skólanum með tveggja mánaða millibili minnir dálítið á Boeing MAX málið. 

Einn bruni hringir ekki bjöllum og flugslys ekki alltaf, en tveir svipaðir brunar í röð og tvö flugslys í röð við eins aðstæður á sömu flugvélategund hringir bjöllum.  

Það versta við slys eða óhöpp, sem hægt væri að fyrirbyggja en gerast samt, er að ekkert sé gert fyrr en eftir að skaðinn er skeður. 

Enn verra ef það þarf tvö samskonar atvik í röð til að það hringi bjöllum og gripið sé til rannsóknar á því hvað gerðist og mótaðgerða í samræmi við það. 


mbl.is Eldsvoðinn á að „hringja öllum bjöllum“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hver hefði trúað þessu fyrir aldamót?

Víst eru Íslendingar sagnaþjóð og orðið saga er tökuorð í ensku. Og eitt Nóbelsskáld eignuðumst við á öldinni sem leið. 

En einhver hefði um síðustu aldamót spáð þeim uppgangi í skrifum glæpasagna, sem hefur orðið á síðustu tveimur áruatugum hér á landi hefði sá spámaður þótt lítt spámannlega vaxinn. 

Listi eins og greint er frá á tengdri frétt á mbl.is hefði verið talið óráðshjal. 

Þó verður að athuga það, að glæpir, morð, mannvíg, pyntingar, lemstranir, brennur, svik og drápsþorsti eru snar þáttur í þessum frægustu bókmenntum okkar frá gullöld íslenskrar sagnaritunar. 


mbl.is Ísland með þrjár bækur á lista Times
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Af hverju ættu tollastríð að vera til góðs?

Þjóðir heims gengu í gegnum þunga reynslu í kreppunni miklu á fjórða áratug síðsutu aldar, þegar þær háðu viðskiptastríð í formi síhækkandi tolla og innflutningshafta. 

Í kjölfarið fylgdi heimsstyrjöld, og afleiðingar hennar voru í fyrstu áframhaldandi höft til þess að fást við efnahagslegar afleiðingar tjónsins af stríðinu. 

Hér á landi komust á þvílík höft, að fólk þurfti jafnvel sérstakt opinbert leyfi til þess að steypa veggi við garða sína. 

Ævinlegar voru aukin höft og flóknara gengi og styrkja- og haftakerfi af ýmsum toga réttlætt með því að um brýna nauðsyn væri að ræða. 

Lítið dæmi var, að Íslendingar eignuðust Evrópumeistara í langstökki, af því að Torfi Bryngeirsson vann hlutkesti í KR um það hvaða tveir íþróttamenn félagsins mættu eignast tvö pör af nýjustu gerð af stökkskóm, sem náðarsamlegt leyfi svonefnds Fjárhagsráðs fékkst til. 

Ástandið var að því leyti til atvinnuskapandi, að meirihluti efnahagslífsins fólst í að framleiða hvers konar varning á eins óhagkvæman hátt og hugsast gat og þúsundir fólks störfuðu við að fylgja fjötrunarástandinu eftir með skriffinnsku og spillingu, sem fylgdi úthlutunum á ýmsum gæðum.  

Avextir eins og epli fengust aðeins innflutt um jólin. 

Í lok sjötta áratugsins rofaði loksins til þegar þjóðir heims áttuðu sig á því hvílíka skaðsemi tolla- og haftastríðsins hafði haft í för með sér. Þó hefur alla tíð verið stunduð stórfelld haftastarfsemi gagnvart þjóðum utan Norður-Ameríku og Evrópu í landbúnaðarmálum til þess að skekkja illilega samkeppnishæfni landbúnaðar þeirra landa, sem utan þessara vestrænu landa standa. 

Miðað við margsannað óhagræði tollastríða gegnir furðu að nú skuli á ný vera hafin svipuð vegferð og olli gríðarlegu alþjóðlegu tjóni áratugum saman á síðustu öld. 

Slíkt er íhugunarefni. Kannski er ein ástæðan sú, að nú er orðið svo langt um liðið síðan, að núlifandi ráðamenn og valdaöfl muna ekki eftir því.  


mbl.is Tollar hækkaðir úr 10% í 25%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skaginn virðist til alls vís.

"Skagamenn skoruðu mörkin". Síðuhafa hraut þetta af munni, bæði þegar hann gerði textann með þessu heiti hérna um árið og einnig þegar hann heyrði úrslit leiks Vals og ÍA á heimavelli Valsmanna nú í kvöld. 

Þau úrslit rímuðu við umsögn Loga Ólafssonar um þessi tvö lið og væntanlegan leik þeirra í hádegisverði í Laugardalshöll í gær.

Logi spáði að vísu "varfærnislega" að úrslitin yrðu líklegast 2:2, en hafði áður gefið sterklega í skyn í greiningu sinni á nýliðunum í Úrvalsdeildinni, að liðið lofaði mjög góðu fyrir sumarið og væri til alls víst gegn hvaða liði, sem væri og gæti gert skurk í deildinni, og þá einmitt á þann hátt sem varð raunin í kvöld.   

 


mbl.is Fyrsta tapið á Hlíðarenda síðan 2016
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband