Metsnjór er frekar merki um metúrkomu en metkulda.

Einn algengasti misskilningurinn, sem haldið er á lofti varðandi loftslagsbreytingar, er að met snjókoma á ákveðnum svæðum sé tákn um kulda og kólnandi veður. 

En hins vegar er það aukin úrkoma fyrst og fremst sem veldur met snjóalögum, enda er snjór úrkoma. 

Þetta kom greinilega í ljós í upphafi aldarinnar, þegar jöklarnir í Noregi, svo sem Folgefonn og Harðangursjökull ásamt þeim fjöllum og hálendi em hæst stóð, fengu á sig meiri snjósöfnun en árin á undan. 

En þrátt fyrir þetta héldu jöklarnir áfram að hopa. Ástæðan var sú, að hlýnunin á vorin, sumrin og haustin, sem meðal annars birtist í því að það voraði fyrr og haustaði síðar en áður, en þetta olli því að það bráðnaði meiri snjór en nam aukinni snjósöfnun efst á hálendinu. 

Einnig rigndi meira hæst á norska hálendinu en áður, líkt og nú hefur gerst á Grænlandsjökli. 

 


mbl.is Oftar rignir á jökulinn að vetri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vantar að höfða til breiðari fjölda.

Athyglisvert er að bera saman tvær byltingar í smíði farartækja með rúmrar aldar millibili. 

Hin fyrri var þegar í stað hests var settur bulluhreyfill til að knýja vagninn. Eftir er á næstum hlálegt hve lengi bílarnir með sínu kantaða og háreista lagi litu út eins og vélknúnir hestvagnar. 

Það var ekki fyrr en á fjórða áratugnum sem fráhvarf hófst fyrir alvöru frá hestvagnafjöðrum yfir í sjálstæða gormafjöðrun og sjálfberandi straumlínulagaðar yfirbygginggar. 

Svipað gerðist þegar rafbílar fóru að ryðja sér til rúms. Margir þeirra eru enn soðnir upp úr bulluhreyflaknúnum bílum og er hinn söluhái Mitsubishi Outlander ágætt dæmi um það. 

Elon Musk sló í gegn með því að endurhugsa og endurhanna frá grunni rafknúinn bíl, en það sem skorti upp ár var, að bílar hans voru alltof dýrir fyrir venjulegt fólk.

JMeðan á orkuskiptununum stendur er mikilvægt að höfða til breiðs og stórs hóps fólks, því að það eru ekki allir sem hafa ráð á að kaupa rafbíl fyrir fjórar milljónir að lágmarki. 

Þess vegnar verður spennandi að sjá hvað á eftir að koma út úr því framtaki Volkswagen verksmiðjanna að smíða rafbíl, sem er svo algerlega hannaður með rafhlöður og rafhreyfil í huga, að ekki verði hægt að nota hann knúinn með öðrum orkugjafa. 

Að ekki sé nú talað um ef ódýrustu rafbilarnir gætu orðið helmingi ódýrari en nú er.  

 

 


mbl.is Kynþokkafull Tesla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gefur vonir um afl fjölmiðla.

Tilnefningar til Blaðamannaverðlauna Íslands gefa vonir um að sú veiklun fjölmiðlunar, sem reið yfir með Hruninu sé að ganga til baka með góðum verkum þeirra, sem hljóta þessar tilnefningar. 

Einnig er vonandi að aðgerðir til styrktar hinu ómissandi hlutverki fjölmiðla í lýðræðisþjóðfélagi getu borið árangur eins og að er stefnt. 

Án viðunandi frammistöðu fjölmiðlanna er hætta á ferðum í heimi sívaxandi útbreiðslu falskra frétta og upplýsinga. 

Þegar litið er yfir listann yfir tilnefningarnar og skoðað, hverju það hefði munað að ekkert af þeim mauðsynlegu upplýsingum sem þar koma fram hefði litið dagsins ljós, er það gott dæmi um þðrfina á vaxandi afli fjölmiðlunar, sem stendur undir nafni. 

 


mbl.is Umfjöllun mbl.is tilnefnd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Risavaxið að öllu leyti.

Umfangið, fjöldinn, áhrifin og leyndarhjúpurinn gera stærstu langstærstu vandræði Facebook frá upphafi risavaxið, einkum vegna þeirrar óvissu varðandi enn stærra áfall síðar, sem skapast hefur. 

Þetta gerist sama dag og skuggi vegna óvissu um þátt stórkostlegs tölvukerfis í tveimur spánnýjum farþegaþotum varpar skugga á flugið í heiminum. 

Sýnir hve hinar gríðarlegu tækniframfarir nú um stundir geta orðið afdrifaríkar fyrir mannkynið á marga lund, bæði til góðs og ills. 


mbl.is Svartur dagur í sögu Facebook
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eðlileg viðbrögð Hæstaréttar í stað þrjósku, sem sumir hafa viljað.

Þegar MDE kvað upp úrskurð í máli Jóns Kristinssonar hér um árið, brugðust Íslendingar við með því að endurskoða íslenska dómskerfið í samræmi við mannréttindasáttmál, sem við höfðum undirritað. 

Þar að auki var settur sérstakur kafli inn í stjórnarskrána, sem var í samræmi við alþjóðlegu mannréttindasáttmálana, sem við höfðum orðið aðilar að. 

Þá, eins og nú voru uppi raddir um að þetta ættum við ekki að gera því að með því værum við að afsala fullveldi okkar.  

Ef slíkar þrjóskuraddir eiga að gilda, sést, að með því myndum við koma okkur út úr húsi varðandi aðild okkar af tugum alþjóðastofnana og samninga, sem við höfum undirgengist allt frá því að við urðum fullgildir aðilar að Alþjóða flugmálastofnuninni IATA 1944. 

Tugir og hundruð alþjóðlegra skuldbindinga, sem fullvalda þjóðir heims hafa samþykkt, hafa samkvæmt skilningi á alþjóðlalögum ekki svipt þessar þjóðir viðurkenningu á fullveldi þeirra, heldur þvert á móti styrkt stöðu þeirra sem jafnrétthárra fullvalda þjóða í óhjákvæmilegu alþjóðlegu samstarfi. 


mbl.is Hæstiréttur bregst við dómi MDE
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Oft alveg ótrúleg þvermóðska erlendra "ævintýramanna".

Síðuhafi hefur margoft orðið vitni af aldeilis ótrúlegri þvermóðsku erlendra "ævintýramanna", sumra dáðra og frægra í löndum sínum, sem neita algerlega að viðurkenna staðreyndir um íslenskar aðstæður að vetrarlagi. 

Gott dæmi er hegðun eins þekktasta sjónvarpsmanns Evrópuþjóðar nokkurrar sem sérhæfði sig í gerð nokkurs konar ævintýra ferðaþátta víða um álfur.

Hann lagði fram í netpósti glæsilega og rándýra ferðaáætlun fyrir ferð umhverfis Ísland og um hálendið á tímabilinu frá áramótum rúma viku fram í janúar. 

Áætlunin barst í október í netpósti og við tóku samfelld netslagsmál við manninn vikum saman við að reyna að koma honum í skilning um jafn einföld og augljós atriði eins og svonefndan sólargang við heimskautsbaug, ef sólargang skyldi kalla, á þessum tíma árs. 

Hann gat með engu móti skilið, að sólarbirtan fælist í daufri sólarupphrás rétt fyrir hádegi, sem tórði veikburða í halfrökkri tvær klukkustundir sem sólarlag. 

Meðaltöl um veðurlag á þessum langversta tíma ársins fóru inn um annað eyrað og út um hitt hjá honum. 

Smám saman tókst að þoka honum aðeins lengra fram á árið, en þó ekki nema um mánuð, sem var auðvitað alveg vonlaus tími líka. 

Til þess að þóknast þessum fræga afreksmanni varð ég að taka tilboði, sem ekki var hægt að hafna, um að fara með honum hluta þessara ferðalaga fljúgandi og á jöklabíl. 

Skemmst er frá að segja að þessi lika svaka ferðaáætlun fór að mestu í vaskinnn, og ferðalögin miklu með manninum urðu að kortérs spjalli fyrir utan heimili mitt.

Það sem bjargaði því litla, sem honum tókst að framkvæma, var að hann kom fljúgandi beint til Akureyrar frá Evrópu og náði þar nyrðra örfáum brúklegum dögum.  

 


mbl.is Á leið til byggða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Allt spennandi, sem þessi hljómsveit segir og gerir.

Framundan er óvenjulega spennandi tími í íslenskum tónlistarmálum vegna innkomu Hatari eins og hvíts stormsveips inn í menningarlíf Íslands. 

Best væri ef þeir gætu komist áfallalaust í úrslitakeppnina, því að ef þeir komast á þann stað, verða möguleikar þeirra auðvitað mestir til að láta að sér kveða of fljótt. 

Um það getur gilt svipað og um afreksfólk í íþróttum, sem þarf að skipuleggja feril sinn og frammistöðu á þann veg að það sé "toppað á réttum tíma."

 


mbl.is Spurðu forsætisráðherra um réttarríkið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Getur verið sannleikskorn hjá Trump en fleira er mögulegt.

Það þarf ekki ofurþotur hvað snertir sjálfvirkni og vandasama "verkferla" til þess að skapa þeim varasamar aðstæður eins og Donald Trump bendir réttilega á. 

Þannig er hættuminnsta einkaflugvél heims og sú mest selda, Cessna Skyhawk, svona farsæl vegna þess hve hún er "forgiving" eins og það er kallað á enskunni; hún er einstaklega hrekklaus og fyrirgefur flugmönnum meira en aðrar vélar. 

Síðuhafi átti á tímabili og flaug flugvél, sem var í hópi þeirra flugvéla, sem var búinn tiltölulega flóknum búnaði á vængjunum til þess að gera kleyft að fljúga henni sem allra hægast  inn til lendinga á sem stystum brautum. 

Vængbrúnirnar voru með tvöföldum raufum líkt og gerist á fullkomnum farþegaþotun, og flaparnir voru afar stórir, sömuleiðis með tvöföldum raufum. 

Þar að auki voru hallastýrin með tvöföldum raufum og voru tvískipt; innri helmingurinn virkaði jafnframt sem hreyfanlegir flapar. 

Þetta þýddi að hægt vara fljúga vélinni miklu reistari og með stærra áfallshorni en öðrum vélum. 

Í slíku flugi, þar sem sýndur hraði gat verið allt niður í 24 hnúta, var hins vegar loftmótstaðan orðin svo mikil, að vélin hélt ekki hæð nema á fullu leyfilegu stöðugu afli. 

Í venjulegu aðflugi á venjulegri vél var talsvert svigrúm til viðbragða, ef til dæmis óvænt niðurstreymi skall á á síðasta hluta aðflugsins. 

Margæfð viðbrögð voru að auka aflið og nota svigrúmið milli ofriss og flugs til að lyfta nefinu og stöðva lækkunina. 

Á Dornier vélinni og sömuleiðis á þeim tveimur vélum af Helio Courier gerð, sem fluttar hafa verið til landsins, varð hins vegar að breyta þessu í það, að gefa fullt afl en beina nefinu örstutta stund niður á við til að auka hraðann um nokkra hnúta svo að hún ofrisi ekki og fengi lyftikraft til flugs.

Þetta útheimti alveg sérstaka einbeitingu flugmanns sem beindst gegn margæfðum ósjálfráðum viðbrögðum í öfuga átt. 

Mistök í hinum nýja verkferli ollu hins vegar svo mörgum slæmum slysum erlendis, að ákveðið var að banna að setja fulla flapa á vélina. Í stað 45 gráða mátti aðeins nota 35 gráður. 

Sú skipun barst aldrei varðandi þessara tilteknu Dornier-vélga til eigenda þeirra á Íslandi, og af þremur eins hreyfils vélum af gerðinni Do, brotlentu tvær.

Síðuhafi er þakklátur fyrir það lán að hans vél slapp. 

Önnur Helio vélanna brotlenti fyrir mörgum áratugum, en hin er enn fljúgandi. 

 

 


mbl.is Flugvélar orðnar „alltof flóknar“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Afneitunin lengi lifi! "Látum sem ekkert C."

Landsdómur, allir 15 dómararnir, leggur niður störf í viku. Blaða- og fréttamenn, sem spyrja lögmenn um afleiðingar dómsins, fá að heyra samfellda sagnaslóð af áhrifum dóms Mannréttindadómstólsins á ótal einstök mál af fjölbreyttum toga. 

En hjá verjendum dómsmálaráðherra er fullkomin afneitun í gangi. Í Kastljósi er sagt, að nú sé næsta skref að bíða bara sallarólegur eftir að yfirdómur snúi dómnum við. 

Meira að segja stjórnarandstaðan er partur af klúðrinu með því að nýta sér ekki rétt sinn til þess að láta greiða atkvæði á þingi um hvern einstakan dómara. 

Ætli þetta sé ekki í um það bil tíunda skiptið sem Mannréttindadómstóll Evrópu tekur í lurginn á íslenskum dómsvöldum. 

Og enn einu sinni eiga viðbrögðin að vera þau að láta sem ekkert sé. 

"Látum sem ekkert C" sungu Halli og Laddi hérna um árið. 

Það á vel við nú.

P.S.  Nú hefur verið tilkynnt að Sigríður "stígi til hliðar," hvað sem það merkir nú eiginlega. Þarf endilega að þýða enskt orðalag til þess að segja frá því sem gert hefur verið? 


Tvö svipuð atvik og í gær höfðu afleiðingar hér á árum áður.

Dómur Mannréttindadómstóls Evrópu fyrir rúmum aldarfjórðungi í máli Jóns Kristinssonar frá Akureyri dró þann dilk á eftir sér hér á landi, að dómskerfinu var breytt til að standast kröfu dómstólsins um aðgreiningu í meðferð sakamála á milli þeirra aðila sem fjöluðu um mismunandi stig mála, allt frá rannsókn eða handtöku þar til dómur var kveðinn upp.

En að sjálfsögðu fer það eftir dómi Mannréttindadómsstólsins og málsatvikum hvaða afleiðingar úrskurður hans nú hefur. 

1979 varð slys á nýrri þriggja hreyfla þotu, Douglas DC-10, af sömu gerð og Íslendingar voru búnir að kaupa, sem varð til þess að flug allra slíkra þotna var stöðvað þar til búið var að lagfæra galla í vélarfestingu á hinum aftasta af þremur hreyflum. 

Þessi aðgerði hafði áhrif hér á landi. En það fer auðvitað eftir málsatvikum núna og umfangi, hvaða áhrif kyrrsetning hinna nýju Boeing 737 Max8 hefur í flugflota okkar og flugrekstri. 


mbl.is Hafi engar sjálfkrafa afleiðingar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband